Morgunn - 01.12.1944, Síða 48
142
MORGUNN
rétt lýst. Það sáum við, þegar við vorum við útförina hans
á þeim stað tveim dögum síðar. Herpresturinn bað mig
að koma með sér í skrifstofu sína og athuga, hvort ég vildi
taka með mér eitthvað af munum drengsins míns,- Hann
fékk mér fyrst skrín, sem miðillinn hafði lýst, og er ég
opnaði það, fann ég þar hópmyndina, sem Pétur hafði lýst
hjá miðlinum, hópmynd af flugforingjum, og var Pétur
þar fremstur á myndinni. Um þetta var okkur gersam-
lega ókunnugt áður.
Þessi fundur sannfærði okkur um, að samband við hina
látnu er mögulegt, og við tókum nú að rannsaka málið al-
varlega. Við kynntumst ýmsum félögum og sátum marga
miðlafundi, og við fengum óslitinn straum af algerlega
sannfærandi sönnunargögnum. Við sannfærðumst um, að
drengurinn okkar væri mjög vel lifandi og vissi um það,
sem gerðist hjá okkur.
Við tókum yngra son okkar með okkur á tvo fundi, er
hann var heima í leyfi frá hernaðinum, og nú lofum við
Guð fyrir, að hann sannfærðist einnig og gekk síðan í gegn
um margar hættur í þeirri öruggu vissu, að ef hann biði
líftjón, færi hann þegar til fundar við heittelskaðan bróður
sinn. Þessir tveir sveinar voru óaðskiljanlegir.
Og Derek (yngri bróðirinn) hafði rétt fyrir sér, hann
sameinaðist bróður sínum, því að nú vitum við, að Pétur
bróðir hans var raunverulega hjá honum, þegar hann yfir-
gaf jarðneska líkamanum. Um fall Dereks í orustu fréttum
við á mánudagsmorgni, en þrátt fyrir þekkinguna, sem
við höfðum nú fengið á dauðanum, var nú um engu minní
sorg hjá okkur að ræða, en þegar við misstum eldra dreng-
inn okkar.
Við ákváðum þegar að fá fund hjá miðli, sem við höfð-
um oft setið hjá áður, og fundinum var lofað á næsta degi.
Um fall Dereks hafði enn ekkert verið birt, og það var
óhugsandi, að miðillinn vissi nokkuð um það.
Það er einnig víst, að við létum enga sorg á okkur sjá,
því að miðillinn, sem er innilega guðhrædd kona, varð á-