Morgunn


Morgunn - 01.12.1944, Side 65

Morgunn - 01.12.1944, Side 65
MORGUNN 159 Ég mundi nú vera nær þér en nokkurt hinna barnanna þinna, ef ég aðeins gæti nálgast þig nógu mikið“. ,,Ég get ekki þolað að heyra þig tala svona dapurlega, yndið mitt“, sagði móðirin. ,,Ég hélt þó a. m. k. þig vera hamingjusama í himnaríki“. „Ég er ekki í himnaríki! En ég get hlegið við þá tilhugs- un, mamma, að sá dagur kemur, að við förum til himna- rikis saman og tinum þar blá blóm. Allir eru mér góðir hér, en ef augu þín þola ekki dagsljósið, getur þú ekki séð sóleyna og baldursbrárnar“. Florence Marryat vissi það fyrst löngu síðar, að á tungumáli andanna tákna bláu blómin hamingju, og nú spurði hún ,,dána“ barnið sitt, litlu stúlkuna, hvort hún héldi, að hún mundi geta skrifað með sinni hendi, móður- innar. En dóttir hennar hafði litla trú á því, að sér myndi heppnast það. Hún sagði við móður sína: ,,Ég er samsett úr tvennu, annars vegar þekkingarlausu barni og hins veg- ar konu, sem er þroskuð að árum“. Og ennfremur sagði hún: „Hvers vegna get ég ekki talað við þig einnig á öðr- um stöðum? Ég hefi óskað þess og reynt það og komizt uijög nálægt þér, en nú er svo auðvelt að tala. Þessi miðill er svo ólikur hinum.“ „Þú veizt ekki, hve mig langar til þess að þú kæmir, þeg- ar ég er ein, Florence“, sagði móðir hennar. „Þú skalt þekkja mig“, var svarað, „ég ætla að koma, elsku mamma, °g ég get allt af komið hérna. Ég kem til þín, þótt ég komi ekki allt af með sama hætti.“ Litla andaveran talaði í svo dapurlegum og raunaleg- Um rómi, að hún var áminnt um að hryggja ekki móður s>na. Svar hennar við því.var athyglisvert: „Ég er blátt áfram eins og ég er. Ef þið væruð komin hingað og sálin v*ri full af dapurleika, mynduð þið ekki geta gert neina raunverulega breyting á því með því að sökkva ykkur nið- Ur í jarðneska gleði. Hryggð okkar skapar heiminn, sem við lifum i. Ef ég hefði lifað, hefði ég bakað þér meiri Sorg, en þú hefir hugmynd um. Ég er betur komin hér. Ég

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.