Morgunn - 01.06.1948, Page 67
MORGUNN 57
fyrir framan byrgið, sem manngerfingarnir byggja sig
UPP í, en reynslan verður oftast sú, að fyrirbrigðin verða
sterkari með því móti, að miðillinn sitji inni í byrgi, sem
°ttast er búið þann veg til, að tjaldað er með dökkum tjöld-
1111:1 fyrir eitt hornið í tilraunaherberginu.
Eddy-bræðurnir sátu í byrgi, þegar manngerfingafyrir-
bærin gerðust hjá þeim, sem Olcott rannsakaði, en frá-
sagnir hans í hinni merkilegu bók, sem hann gaf út um
rannsóknir sínar (People from the other World), virðast
Sefa fullnægjandi trygging fyrir því, að engum brögðum
hafi verið unnt að beita. En Olcott fékk trúverðuga menn,
sem ekki unnu að rannsóknunum sjálfir, til þess að gera
allar varúðarráðstafanir gegn miðlunum. Fjöldi af furðu-
legum líkamningafyrirbrigðum komu þarna fram, fjögur
hundruð verur birtust á tíu vikum, margar þeirra búnar
hinum undarlegustu og óvæntustu klæðum. Skýrslunum
af rannsóknum hans var tekið með fullkominni vantrú af
^Pörgum, en öðrum þótti skynsamlegra að taka til greina
huð, sem þeir menn sögðu, er sjálfir höfðu orðið vottar að
^yrirbærunum og virtust hafa rannsakað þau af mestu
sarnvizkusemi og nákvæmni, en dóma hinna, sem ekkert
höfðu til málanna að leggja annað en tortryggni og aldrei
höfðu kynnzt slíkum fyrirbrigðum.
Ejá öðrum bróðurnum, William Eddy, gerðust líkamn-
lngafyrirbærin, hjá hinum bróðurnum, Horatio Eddy, gerð-
Ust önnur fyrirbrigði. 1 sæmilega björtu ljósi sat hann fyrir
htan byrgið, hjá fundamönnunum, en inni í byrginu voru
^aisir hlutir, sem hin ósýnilegu öfl gerðu allskonar tilraun-
lr með, t. d. hljóðfæri, sem leikið var á, oft mörg sam-
stundis, og holdgaðar hendur birtust fyrir framan byrgis-
tjaldið. William Eddy hélt einnig fundi með tilraunamönn-
Unum í fullu myrkri, og þá urðu fyrirbrigðin miklu stór-
Postlegri, en í skýrslum sínum segir Olcott frá því, hvern-
*§ rannsóknamennimir höfðu fuilt eftirlit með miðlinum
^Peðan fyrirbrigðin gerðust.
Eitt hið markverðasta í rannsóknum Olcotts var það,