Morgunn - 01.06.1952, Blaðsíða 51
MORGUNN
45
verða bráðlega í Evrópu, en gefið gaum að Austurlöndum.
Innan tveggja ára brýzt út stríð í Austur-Asíu.“
Er þetta raunverulegt? Skiljum við þetta? Getum við
trúað þessu? Um það þarf í rauninni ekki að ræða. Aðal-
málið er hitt, að hinn skarpgáfaði, rökvísi og gagnrýnandi
forsætisráðherra, Mackenzie King, var ekki í neinum vafa.
J. A. þýddi.
Móðir hinna óbornu.
Eftir Jakob Jóh. Smára.
★
Ó, móSir, þú syngur þinn söng,
þegar sólsTán af dimmunni ris,
yfir jarðlífsins þrotlausu þröng
og hinn þungbæra sorganna is, —
yfir árin, sem Ijóma svo löng,
þótt að lokum sé dauðinn oss vís.
Láttu óma þinn unaðarsöng
hinum óbornu’ úr paradís.
Þeir heyra þitt heilsandi lag
í þann heim, þar sem framtíðin býr,
um hinn dýrðlega vonanna dag
og þá draumnótt, sem andstreymið flýr, —
lag um sigur á sökkvandi hag
og þá synd, er í húmið sér snýr.
Já, þeir lieyra þitt heillandi lag
um hið himneska ævintýr.