Morgunn - 01.06.1957, Blaðsíða 39
William T. Stead
og hin ósjálfráðu skrif hans
★
Snemma í vetur kom út á forlagi S.R.F.f. hin víðkunna
bók, Eftir dauðann, Bréf frá Júlíu, sem hinn kunni blaða-
maður, William Stead, reit ósjálfrátt. Er þetta önnur út-
gáfa bókarinnar , íslenzkri þýðingu Einars H. Kvarans,
og seldist hún enn afar vel.
Lesendum MORGUNS mun mörgum forvitni á að vita
eitthvað meira um hin ósjálfráðu skrif þessa fræga manns,
en unnt var að segja frá í stuttum formála af bókinni.
W. T. Stead var 43 ára gamall og orðinn kunnur víða
um heim fyrir afburða blaðamennsku, þegar 'hann gerði
þá uppgötvun, að hann væri búinn sálrænum hæfileikum,
gæti skrifað ósjálfrátt. Árinu áður hafði vinkona hans,
Júlía Ames, gáfuð menntakona og ritstjóri að kvennablaði
vestan hafs, andazt. Og hann fékk fljótlega sterk sönn-
unargögn fyrir því, að hún stæði á bak við hina ósjálf-
ráðu skrift, að það væru 'hennar hugsanir, sem á blaðið
lcæmu með hendi hans. Samstarf þeirra stóð árum saman.
í ársfjórðungsriti um sálræn mál, Borderland, sem hann
stofnaði og gaf út, voru ósjálfráðu skrifin fyrst birt, en
síðar í bókarformi.
Stead var sannfærður um, að Júlía væri ekki eina látna
veran, sem ritaði með hendi hans, og eftir óskum hennar
tók hann einnig að gera tilraunir með að fá með hendi
sinni ósjálfráða skrift frá lifandi, jarðneskum mönnum.
Og tvímælalaust virtist honum takast það. Hann fékk
nokkra vini sína, fjarstadda, til að leggja út í þessa til-
raun. Tilraunirnar gáfu vitanlega misjafnan árangur, en