Morgunn - 01.12.1957, Blaðsíða 46
132
MORGUNN
„vitleysu". En dagstæðu ári síðar gerðist það, að bóndinn
lét lífið með þessum sama, sviplega hætti.
„Þarna áttu að eiga heima í sjö ár“
Meðan Helga, föðursystir mín, bjó búi sínu á Hall-
steinsnesi í Gufudalssveit, dreymdi hana einhverju sinni,
að hún kæmi að sveitabæ, sem hún hafði aldrei áður séð.
Virti hún þar allt fyrir sér utan húss og tók vel eftir
öllu. Ekki þóttist hún fara lengra en í hlaðið. Kom þar
til hennar ókunnur maður og sagði: „Þarna áttu að eiga
heima í sjö ár“. Draumurinn varð ekki lengri.
Árin liðu, Helga varð ekkja, og bauð þá faðir minn,
bróðir hennar, séra Guðmundur Einarsson þá á Breiða-
bólsstað á Skógarströnd, henni til sín, og tók Helga því
boði. Þegar hún kom í hlaðið á Breiðabólsstað þekkti hún
gjörla bæinn, sem hana hafði dreymt mörgum árum fyrr
á Hallsteinsnesi, svo vel hafði hún sett á sig allt utan
húss í draumi sínum. Draumurinn rættist að fullu. Helga
lifði eftir þetta í sjö ár hjá bróður sínum og andaðist þar.