Morgunn - 01.12.1957, Blaðsíða 73
MORGUNN
159
horft á hann ,án þess að finna til hins minsta sársauka og
vaknaði með bros á vörum. Á þessum augnablikum lifði
hann og reyndi það, er Jack London nefndi hinn minni
dauða. Einu sinni kvaðst hann hafa fundið mjög greini-
lega að einhver ósýnilegur máttur hafi haldið spennitreyj-
unni í sundur. Hann greindi ekki hinn ægilega þrýsting,
sem fylgdi samdrætti hennar, gat hreyft handleggi og
hendur að vild innan í henni.
Einatt kom það fyrir, meðan á pyntingunum stóð, að
hann vissi sig dvelja á fjarlægum stöðum, hann ferðaðist
um sveitina, athugaði kirkjur og sveitabýli, og stundum
saman vissi hann sig vera á gangi um strætin í San Fran-
cisco. öðru hverju vissi hann sig staddan á fjarlægum,
óbyggðum eyjum eða á einhverjum stöðum í hitabeltinu
og sá þar svertingja, en á næsta augnabliki brá fyrir
hann landslagi og umhverfi, sem líkara var heimahögum
hans. Tíðum sá hann viðburði vera að gerast á þeim stöð-
um, sem hann þóttist staddur á, er síðar var unnt að stað-
festa, að höfðu gerzt á sama stað og sömu stundu, er hann
vissi sig skynja þá.
Frá sálrænu sjónarmiði er það merkilegt og athyglis-
vert við reynslu Ed. Morrells, að allt samband hans við
umheiminn var rofið. Hann var geymdur í gluggalausum
kjallaraklefa, og átti ekki kost að ræða við aðra en hina
dýrslegu kvalara sína, og honum var því ekki unnt að vita
um neitt, sem gerðist fyrir utan veggi fangaklefa hans.
En eigi að síður voru lýsingar hans af því er hann skynj-
aði, meðan hann dvaldi utan líkamans, réttar og nákvæm-
ar, eins og auðið var að fá staðfest. Sjálfur var hann
sannfærður um að hann hefði hvað eftir annað yfirgefið
jarðneskan líkama sinn og ferðast um sem frjáls maður í
hinum ytra heimi, og hvernig hefði hann mátt verða alls
þessa vísari, ef svo hefði ekki verið? Hvernig væri unnt
að skýra þessa furðulegu reynslu hans á annan veg?
Fjögur ár liðu þar til Morrell hlaut fullt frelsi, en mán-
uði þá er hann naut mannúðlegrar meðferðar í fangavist