Morgunn - 01.06.1958, Síða 9
MORGUNN
3
Hvað kenna lærisveinar Jesú um lífið
eftir dauðann?
Svarið finnum við ýmist í guðspjöllunum, Postulasög-
unni eða bréfum postuianna. Merkilegasti og stórkostleg-
asti vitnisburður lærisveinanna er frásögn þeirra um birt-
ingar hans eftir dauðann, birtingar hans í andlegri og for-
kláraðri líkamsmynd. Ýmsar sögur hafa vafalaust verið
til um þessar birtingar hans, þess vegna geyma guðspjöll-
in ýmsar og ólíkar frásagnir af þeim. í 15. kap. fyrra Kor-
intubréfs segir Páll frá nokkrum þeirra, og eru það elztu,
rituðu vitnisburðirnir, að Jesús hafi birzt Kefasi, (Pétri),
og síðan þeim tólf, og að því næst hafi hann birzt meira
en fimm hundruð bræðrum í einu, séu flestir þeirra enn á
bfi (þegar Páll ritar frásögu sína), en nokkurir sofnaðir.
Síðan hafi hann birzt Jakobi (bróður Jesú), síðan öllum
postulunum (sem merkir hér: öllum lærisveinunum) og
síðast allra Páli sjálfum.
Sönnunin fyrir sannleiksgildi upprisufrásagnanna er
fyrst og fremst þessi: þessi reynsla breytti lærisveinun-
um úr óttaslegnum, sigruðum mönnum, sem fóru huldu
höfði af hræðslu við að hreppa sjálfir örlög meistara síns,
i fagnandi, djarfhuga votta, sem óttalausir gengu nú fram
og fluttu hverjum, sem heyra vildi, þann boðskap, að hinn
líflátni meistari þeirra lifði enn, og að eins og hann lifði,
Þótt látinn væri, myndu þeir sjálfir lifa líkamsdauðann.
Það var þessi vitnisburður um lífið eftir dauðann, sem
hafði sín geisilegu áhrif á menn þessara löngu liðnu tíma.
Hvað segir nú heilbrigð skynsemi
og rökföst hugsun oss um framhald
sjálfsvitundar einstaklingsins eftir
dauðann?
Það er vitanlega undir því komið, hverja hugmynd við
gjörum okkur um samband okkar andlega manns, vit-
undarlífsins, og jarðnesks líkama okkar og heila. Ef við