Morgunn - 01.06.1958, Page 21
MORGUNN
15
lega undrandi, þegar frændi sagði okkur, að mjög ólíkleg
persóna hefði tjáð sér í drauminum, að hann vildi kaupa
hestinn, ef hann setti verðið niður um 2 sterlingspund,
sem var hlægilegur afsláttur af háu hestverði. „Kaupand-
inn“ í draumi frænda míns hafði verið rauðskinni nokkur,
bóndi á Pedro-sléttunum, með poka á bakinu. Okkur fannst
ekkert geta verið meiri fjarstæða en þetta, en samt biðum
við þess að „kaupandinn" gæfi sig fram. Við vorum búin
að fá svo margar óyggjandi sannanir fyrir forspám frænda
míns í draumi.
Og sannarlega kom „kaupandinn“. Hugsið ykkur undr-
un frænda míns, þegar honum varð litið upp frá vinnu
sinni, daginn eftir að hann hafði dreymt drauminn, varð
litið út um gluggann og sá manninn úr draumnum standa
úti á götunni, með pokann á bakinu. Hann beið ekki boð-
anna, en kallaði út til hans og klappaði saman höndum um
leið, til þess að vekja athygli hans: „Hvers ert þú að leita,
maður minn?“
Það kom áiióndann, en hann svaraði: „Ég fór rétt áðan
um bæinn Sah, og þar bað vinur minn einn mig að litast
um eftir hesti fyrir sig“.
„Ég hefi hestinn, sem þig vantar“, sagði frændi minn.
Maðurinn lagði fyrst lítinn trúnað á þetta, en þegar
hann var búinn að sjá „Sir Thomas", varð hann himinlif-
andi. Hann ætlaði að fara að ganga að verðinu, sem sett
var upp, þegar hann hikaði og sagði: „ . . . en ég geng að
þessu, ef þér sláið tveim sterlingspundum af verðinu".
*
Á æskuárum mínum skemmtum við okkur heima oft við
að gera tilraunir með hið svokallaða Ouija-borð. (Borð
með stafrófinu á pappaplötu og vísi, sem benti á stafina,
ósjálfrátt, þegar fólk snerti borðið. Þannig fengust ýtar-
legar orðsendingar, sem sumir álitu koma frá látnum
mönnum. Þýð.) Kveld nokkurt, það var laugardagskveld,
lýsti andinn, sem tjáði sig að verki, yfir því, að hann væri