Morgunn - 01.06.1960, Blaðsíða 8
2
MORGUNN
kynna nýrri kynslóð málið. og hin sú, að gefa þeim, sem
þegar hafa verulega kynnzt því, möguleika til að fylgjast
með nýjum viðhorfum, sem skapast.
N1, , , Á síðustu áratugum hefir komið fram ný
Ny tegund . 6 J
,. grem salarrannsokna, sem nefmst „para-
psychologie . Þeir sem þær rannsoknar
stunda, fást að mestu við sömu fyrirbærin og fyrirrenn-
arar þeirra, sálarrannsóknamennirnir. — Víðkunnastur
þeirra, sem við þessa nýju grein rannsókna fást, mun
vera dr. Rhine, prófessor við Duke-háskólann í Banda-
ríkjunum. Þessir menn hafa unnið mikið, markvisst og
merkilegt rannsóknastarf, en ritstj. MORGUNS fær ekki
séð, að þeir hafi leitt mikið annað í ljós en það, sem sálar-
rannsóknamennirnir voru búnir að leiða í Ijós áður. En
þeir hafa beitt að nokkuru nýjum aðferðum, sem ýmsum
nútímamönnum kann að getast betur að en hinum fyrri
aðferðum.
Þeim, sem reka hinar nýju rannsóknir — „parapscho-
logie“ — lá það í byrjun engan veginn í mestu rúmi, að
leita sannana fyrir framhaldslífi mannssálar-
innar. Um það voru fyrstu sálarrannsókna-
mennirnir heldur ekki að hugsa fyrst og
fremst. En fjölmörgum þeirra fór svo, að hlutlausar rann-
sóknir á fyrirbrigðunum ýmist sannfærðu þá um fram-
haldslífið eða gáfu þeim svo sterkar líkur, að undir niðri
sannfærðust þeir, án þess að telja rétt að tala um fram-
haldslífið sem sannað mál. Og nú sýnist sumum hinna
nýju rannsóknamanna ætla að fara á sömu leið.
Síðasta hefti MORGUNS kom út á aldarafmæli Einars
H. Kvarans og var helgað minningu hans. S.R.F.Í. gaf
auk þess út stórt safn af fyrirlestrum hans um sálræn
mál: EITT VEIT ÉG, — og hélt auk þess
fjölsóttan hátíðarfund í Sjálfstæðishúsinu
í Reykjavík í minningu afmælisins. Þar flutti þáverandi
forseti félagsins stutt erindi um Einar H. Kvaran, frú
Soffía Haraldsdóttir, síra Jón Auðuns og leikararnir Ævar
Svipað fer
þeim enn
Aldarafmæli