Morgunn - 01.06.1960, Blaðsíða 22
16
MORGUNN
athöfn á réttum tíma, var Sir Oliver Joseph Lodge, frægur
eðlisfræðingur og forseti Brezka Sálarrannsóknafélagsins
um margra ára skeið.
Ég segi í upphafi þessa sögu, vegna þess að hún lýsir
Sir Oliver Lodge vel. Þótt hann væri einn af frægustu
vísindamönnum sinna tíma, verður þeim, sem þekktu hann,
minnisstæðastur styrkleiki skapgerðarinnar og þeir per-
sónutöfrar. sem hann var gæddur. Jafnvæginu, sem hélzt
í hendur við kraptinn í skapgerð hans, er það að þakka,
hve vel honum tókst að halda saman félagi, þar sem hinar
sundurleitustu skoðanir áttu heima, og hve vel honum
einnig lét, að setja fram og meta eigin rannsóknir sínar.
Hann var ekki aðeins vitsmunamaður. Hann var heill
maður. Þessvegna er nafn hans eitt hinna stóru nafna
í vísindalegum sálarrannsóknum í Bretlandi.
Sir Oliver Joseph Lodge var fæddur í Penkhull á Eng-
landi 12. júní 1851 og andaðist 22. ágúst 1940. Hann
lærði í Newport-latínuskóla og háskólanum í London, þar
sem hann tók doktorsgráðu í vísindum. Háskólarnir í
Oxford og Cambridge gerðu hann að heiðursdoktor í vís-
indum og fjórir skozkir háskólar gerðu hann að heiðurs-
doktor í lögum. Hann var kjörinn fyrsti rektor hins ný-
stofnaða háskóla í Birmingham og gegndi rektorsembætt-
inu 1900—1919, og hvað eftir annað var hann forseti
Brezka Vísindafélagsins, Röntgenfélagsins og Eðlisfræð-
ingafélagsins. Hann var aðlaður árið 1902. Æðstu heið-
ursmerki hlaut hann Konunglega Vísindafélagsins og raun-
ar víðar, fyrir starf sitt og afrek sem brautryðjandi þráð-
lausa símans, og lærdómsfélög bæði á Englandi og vestan
hafs sæmdu hann virðingarmerkjum.
Oliver Lodge giftist árið 1877 Mary Marshall. Hún
andaðist árið 1929. Þau eignuðust sex syni og sex dætur.
Yngsti sonur þeirra, Raymond Lodge, féll á vígvöllunum
í Fakklandi í fyrri heimstyjöldinni árið 1915. Bókin RAY-
MOND segir frá orðsendingum, sem Oliver Lodge fékk
frá syni sínum eftir andlát hans, og geymir ýms sterk-