Morgunn - 01.06.1960, Blaðsíða 34
Þeir trúa á líf eftir dauðann
★
Trú á einhverskonar ódauðleika boða flest hinna miklu
trúarbragða, og þessi trú er viðurkennd um allan heim.
Ameríka stórblaðið New Ýork Herald Tribune gekkst
nýlega fyrir skoðanakönnun um þetta efni í níu löndum,
og í sex þessara níu landa reyndist helmingur manna
eða meira trúa á ódauðleika. í rammkaþólsku landi, Italíu,
reyndust fjórir af hverjum fimm trúa á ódauðleika.
1 Japan aftur á móti reyndist hundraðstalan lægst, þar
sem aðeins 30 af hundraði reyndust trúa á ódauðleika,
og boða þó bæði höfuðtrúarbrögð japönsku þjóðarinnar,
Búddhadómur og Shintóismi, trú á framhaldslíf.
Spurningarnar, sem lagðar voru fyrir fólkið í þessum
níu löndum, voru í rauninni í fernu lagi: a. Trúið þér, að
líf sé eftir dauðann? b: Teljið þér sennilegt, að líf sé
eftir dauðann? c: Teljið þér ólíklegt, að líf sé eftir dauð-
ann? d: Teljið þér, að áreiðanlega sé ekki um líf að ræða
eftir dauðann?
Skoðanakönnunin leiddi þessi svör í Ijós:
Áreiðan- Senni- Ósenni- Áreiðanl. * Veit
legt legt legt ekki s. ekki
Italía ....... 51% 28% 6% 8% 7%
Noregur....... 42 24 7 7 20
Belgía .......... 33 19 15 15 18
Brazilía ........ 33 15 7 36 9
Frakkland ... 31 26 15 17 ll