Morgunn - 01.06.1960, Blaðsíða 44
38
MORGUNN
legur til að trúa, að öll þessi áhrif, góð og ill, festi rætur.
Þetta skulum við athuga betur.
Kristur segir, að öllum á óvart, bæði húsbóndanum og
þjónum hans, hafi illgresið komið í Ijós, þegar akurinn
var 'fullsprottinn. Eigandinn vissi ekki annað en það, að
góðu sæði hafði verið sáð. Hitt vissi hann ekki, að fleiri
höfðu sáð en hann grunaði. En nú sá hann, að á akrinum
hafði ekki aðeins það, sem hann ætlaði að rækta, borið
ávöxt, heldur einnig annað, sem hann hafði ekki verið á
verði gegn, að í akurinn væri sáð.
1 rökkurálfum þíns innra manns er margt að þróast,
sem þú veizt ekki um. Það er miður á valdi þínu en þú
veizt, að fylgjast með því, sem í afkimum sálar þinnar
er að gerast. Skrúðjurtir, sem þú veizt ekki um, kunna
að vera að dafna þar, en illgresi, sem þér er ennþá síður
kunnugt um, einnig. Líttu á garðinn þinn, sem nú er að
færast í blóma. Daglega getur þú gert þá uppgötvun, að
jurtir eru þar að skjóta upp kolli, sem þú áttir enga von á.
Þessi sannindi um sál þína, sem meistaranum frá Naza-
ret voru kunn fyrir 19 öldum, hafa fengið ríkan stuðning
frá sálarfræði síðustu tíma, ekki sízt frá sálgreiningunni,
pscycho-analyse, sem kennd er við Freud og fjöldi geð-
lækna notar og sálusorgarar með miklum árangri fyrir
sálsjúka menn.
Rannsóknir hafa leitt í ljós furðulega hluti um sálar-
lífið og sýna, hve miklu meira geymist í djúpum vitund-
arinnar en menn almennt grunar. Átakanlega sanna þess-
ar rannsóknir orð Krists um sæðið, sem grær og vex,
þótt maðurinn viti eigi, með hverjum hætti.
Þrásinnis kemur í ljós, að rætur geðveikinnar liggja
í atvikum, gömlum eða jafnvel gleymdum, og þá verður
lækningin tíðum möguleg, þegar búið er, með dáleiðslu
eða samtali við sjúklinginn, að komast að gömlum leynd-
armálum, sem í sálardjúpum hans geymdust, þótt hann
teldi sjálfum sér og öðrum trú um, að þau væru löngu