Morgunn - 01.06.1960, Blaðsíða 59
MORGUNN
53
þátta sálarlífsins. Vér kvörtum nú undan verðbólgu. En
versta verðbólga, sem heimurinn hefur kynnzt til þessa,
er sá ofvöxtur, sem hlaupið hefur í einhliða þróun skiln-
ingsins. Sennilega á skáldið við, þótt ekki sé það tekið
fram, ekki beinlínis fræðilegan skilning, heldur góðan
skilning manna og þjóða á milli. Verður á þeim grund-
velli viðurkennt, að nokkur sannleiki felist að baki þeim
skilningi á skilningnum.
Þó mun sá skilningur ná skammt til að skapa frið milli
tveggja fjandsamlegra fylkinga. Sannleikurinn er sá, að
þar þarf eitthvað annað sterkara afl en skilningur að
koma til, e,f unnt á að vera að ná heilbrigðum viðskiptum
manna og þjóða á millum. Það var t. d. ekki vegna skiln-
ingsleysis, að tveim eða fleirum víkingafylkingum laust
saman forðum, heldur fremur miklu vegna skilnings. Báð-
um aðilum var það fyllilega ljóst, hvað hvor um sig hafði
að markmiði. Þeir voru báðir í ránserindum og ólu hinar
sömu vonir í brjósti, vonir um fljótfenginn auð og frama.
Það var því „spennandi“ að ganga til þessa tvísýna leiks.
Hið sama gildir um þær þjóðir, er auka vilja ríki sín
með ofbeldi. Það er því ekki vegna skilningsleysis, að
þeim lýstur saman. Á sama hátt er það ekki vegna skiln-
ingsleysis, að friðelskandi þjóðir mynda með sér varnar-
lög til verndar frelsi og mannréttindum, heldur vegna
skilnings. Hið sama gildir um viðskipti einstaklinga. Skiln-
ingurinn einn er gersamlega aflvana án samvinnu við
trú og siðgæði. Fyrstu persónu þessarar þrenningar ber
því að víkja úr sæti, þar til öðruvísi verður ákveðið og
eitthvað nýtt verður fundið, er bæti skilninginn upp. —
önnur persóna þrenningarinnar er:
77j Þekkingin.
Hvað hefur hún gert ? — Hefur hún endurleyst heim-
inn? Því má vissulega svara neitandi. Áhrif vísindalegrar
þekkingar hafa sannarlega ekki orðið mannlífinu til bless-
unar að öllu leyti. 1 þrjár síðast liðnar aldir ríkti ákveðin