Morgunn - 01.12.1960, Blaðsíða 81
Ólína Þorsteinsdóttir:
Tvö andleg ljóð
★
Frú Ólína Þorsteinsdóttir, ekkja Guðmundar skálds Guð-
mundssonar, varð áttmeð fyrir fáum vikum. Hún er prýði-
lega gefin kona, Ijóðelsk eins og vænta mátti um konu, sem
varð ástvinur og eiginkona skálds, og vel hagorð sjálf.
Yfir þvl hefir frú Ólína látið lítið, en þegar ritstjóri Morg-
uns komst yfir þessi hugðnæmu Ijóð, sem hún yrkir hálf-
áttræð og nær áttræðu, tók hann þau traustataki til birt-
ingar. Hið heiða hugarfar, sem lýsir sér í Ijóðunum, og
hið bjarta trúnaðartraust, á vissulega erindi til margra
lesenda Morguns. — Ritstj.
Páskar 1957.
Enn eru páskar, enn er vor —
enn eru stigin fórnarspor.
Enn er kærleiks opnuð lind —
enn skín lífsins fegurst mynd.
Páskasólin bjöi't og blíð,
brýst í gegnum hel og stríð.
Enn er hatur, enn er stríð —
enn er háski búinn lýð.
Enn er kæi'leiksandinn smár —
eftir nítján hundruð ár.
Páskasólin björt og blíð,
brýst í gegnum hel og stríð.