Morgunn - 01.06.1963, Page 69
MORGUNN
63
í fæstum kirknanna eru helgisiðirnir miðaðir við smekk
og þarfir Afríkumanna. T. d. er bjöllum hringt í messunni
þegar altarissakramentið er viðhaft, í stað þess að berja
bumbur eða klappa höndum, en þannig láta Afríkumenn
fögnuð sinn í ljós en ekki með bjölluhringingum. Þetta
verður allt til þess að Afríkumenn skoða kristindóminn
trúarbrögð hvítra manna einna“.
Stjórnmálamaðurinn E. svaraði: „I helgisiðunum segja
kristnir menn: Sælir eru fátækir á jörðu, því að þeir munu
á himnum saddir verða. Þannig hvetja þeir hina sárfátæku
Afríkumenn til þess að sætta sig við að ganga á mis við
fátæklegustu lífsnauðsynjar, meðan Evrópumennirnir hér
syðra lifa við óhóf og auðævi.
Og ennfremur hvetja sumar kirkjurnar (þær rómv.-
kaþólsku) sóknarbörn, sem þjást af skorti á fjörefnum og
eru vannærðir, til þess að neyta ekki kjöts á vissum dög-
um og draga úr matarneyzlu sinni, fasta. Hvílík vitleysa.
Væri það ekki betri leið, að sjá fyrst um það, að Afríku-
menn hafi nóg að borða og fyrirskipa þeim þá fyrst að
fasta ?“
Af þessum svörum stjórnmálamannanna í Afríku dreg-
ur blaðamaðurinn ýmsar ályktanir, sem einkum varða
rómv.kaþólska trúboðið og lesendur MORGUNS munu
sennilega ekki láta sig skipta miklu máli, en lokaorð hans
eru þessi:
„Afríkumenn hafa lengi haft illan bifur á kristindóm-
inum vegna þess, að sumir kristniboðanna hafa vakið tor-
tryggni með trúboðsaðferðum sínum. Til eru stórveldi, sem
eru að reyna að vekja til lífs nýja nýlendustefnu í Afríku.
Ætla trúboðarnir að gerast þjónar þessara manna, eða
ætla þeir að taka sér stöðu við hlið Afríkumanna sjálfra
með róttækum breytingum á starfsaðferðum sínum? Und-
ir því, hvora leið trúboðarnir fara, er framtíð kristindóms-
ins í Afríku komin. J. A. þýddi.