Morgunn - 01.06.1965, Síða 64
58
MORGUNN
samstilling. Hin sérstöku líffæri þróast, milljónir lifandi
fruma skiptast í hópa, sem ætluð eru ákveðin störf, sem
þær eru gerðar sérstaklega hæfar til að leysa af hendi, vexti
þeirra er flýtt eða hann takmarkaður eftir þörfum, og allt er
þetta hnitmiðað við þarfir líkamsheildarinnar. Nýjar frum-
ur verða til og taka við af þeim gömlu, þannig að á löngu
æviskeiði er líkaminn búinn að endurnýja sig hvað eftir
annað.
Frumum og jafnvel heilum vefjum er unnt að halda lif-
andi um skeið, þótt teknar séu burtu úr þeim líkama, sem
þetta er hluti af. En í líkamanum sjálfum starfa frumurnar,
sem trúir og hlýðnir þegnar hins mikla samfélags. Á heil-
brigðum líkama taka ekki hendur eða fætur upp á því að
vaxa skipulagslaust og verða að einhverjum óskapnaði, né
heldur fær hjartað að stækka langt umfram það, sem hæfir
þörfum líkamans sem heildar.
öll líffæri líkamans, enda þótt samsett séu af milljónum
fruma hvert um sig, hlýða einhverri yfirstjórn, sem heldur
þeim í hæfilegum skefjum og berst á móti hverri tilhneig-
ingu til uppreisnar, eða hverrar þeirrar hegðunar, sem lík-
amsheildinni megi stafa hætta af.
Hvernig er þessari stjórn og fyrirkomulagi háttað og
haldið við? Menn tala um kirtlastarfsemi og hormóna. Menn
tala um, að vanskapnaður eða ofvöxtur stafi af offramleiðslu
eða vöntun ýmissa kirtlavökva. Menn tala um, að erfðalitn-
ingar valdi miklu um allan svip og útlit líkamans.
En hvað er öll þessi þekking? Hún er ekki öllu meira en
fróðleg lýsing á líkamsvélinni. Menn vita margt um það,
hvernig hinir einstöku hlutar hennar eru gerðir og hvemig
þeir starfa, en heldur ekki miklu meira. Þetta er ekki ólíkt
því, að vélfræðingur vissi allt um gerð bílsins síns nema það
eitt, að hann væri gerður af mannahöndum. En þá fyrst er
unnt að skilja hinn flókna útbúnað bílsins, þegar við gerum
okkur Ijóst, að hann er framkvæmi skynsamlegrar hugsunar
og vits.
Látum líffræðinga og efnafræðinga halda áfram rann-