Morgunn


Morgunn - 01.12.1966, Síða 6

Morgunn - 01.12.1966, Síða 6
84 MORGUNN þó einkum hins ritaða orðs, tekst honum að varðveita reynsluþekkinguna frá kyni til kyns, svo að einn megi auka við og byggja ofan á þá reynslu, sem annar hefur aflað. Samfara hinni sífelldu þróun vitsmuna og tækni, virðist sjálf líkamsþróun mannsins staðna og henni jafnvel fara aftur. Hennar er ekki lengur sama þörf og áður. Og nú er svo komið, að mannslíkaminn er orðinn með öllu óhæfur til þess að berjast í lífsbaráttunni hvar á jörðu sem er, ef ekki kæmu honum þar vitsmunir og tæki til hjálpar. Allt bendir því til þess, að framtíðarþróun mannsins verði ekki á hinu líkamlega sviði, heldur á hinu vitsmunalega eða andlega. Annars vegar verður hún fólgin í síauknu valdi mannsins yfir efninu og orku þess, hins vegar í þroskun andans, sem smám saman brýzt úr viðjum og takmörkunum efnisins til æðri lífsfyllingar. Að minnsta kosti virðist sú þroskaleið ekki aðeins vera möguleg, heldur eðlilegt framhald þeirrar þróunarstefnu, sem þegar hefur verið tekin. Hitt er svo annað mál, hvort maðurinn ber gæfu til að halda áfram á þeirri þroskaleið. Það er og verður undir sjálfum honum komið fyrst og fremst af þeirri einföldu ástæðu, að hann hefur þegar tekið þróun sína í eigin hendur og getur ekki framar sleppt taumhaldinu á henni. Þetta gildir ekki aðeins um mannkynið sem heild. Þetta gildir hvern einstakling, hvern mann og hverja konu. Hver maður hefur vald á lífi sínu að verulegu leyti, þó fjarri sé því, að hann sé þar alls ráðandi. Og af því leiðir, að hann ber ábyrgð á lífi sínu langt umfram allar aðrar lifandi verur. Áður en lengra er haldið er rétt að gera sér grein fyrir því í allra stærstu dráttum, í hverju líf mannsins er einkum frábrugðið lífi dýranna. Er þá fyrst að snúa sér að líkam- legu hliðinni. Líkami mannsins er miklu seinþroskaðri en dýranna. Fyrsta árið er hann með öllu ósjálfbjarga, og full- um þroska nær hann ekki fyrr en eftir 15—20 ár. Alla ævi er hann miklu óhraustari en líkamir dýranna, og á hann herja tugir sjúkdóma, sem dýrin eru algerlega laus við. 1 ellinni þjáist hann af margvíslegri hrörnun langt umfram
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.