Morgunn - 01.12.1966, Side 23
MORGUNN
101
þá. Allir litir verða sviplausir í samanburði við blik þeirra.“
Hún telur englana vera annarrar þróunargreinar en
menn. Þeir skiptast ekki í karlengla og kvenengla, heldur
eru bæði kynin uppsvelgd í eitt. Aldrei kveðst hún hafa séð
nakta engia, nema þá lítil englabörn. Venjulega séu þeir
klæddir skrautlegum klæðum gull- og silfurofnum og prýdd-
um demöntum. Stundum séu þeir þó í hvítum skikkjum úr
fíngervu efni, líkt og Fra Angelico málar þá, en sumir séu
eins og í silfruðum brynjum, sem falla þétt að líkama þeirra.
Englar hafa ekki aðeins birzt kristnum mönnum, heldur
eru sagnir um þá miklu eldri. Þeir eru þrungnir af lífi og
krafti og umvafðir þeirri fegurð og dýrðarljóma, sem jafn-
vel skrælþurrir kirkjufeður hafa ekki getað rænt þá. Þeim
fylgir í senn dýrð og máttur. Rödd þeirra er eins og lúður-
hljómur, og þeir eru klæddir hertygjum ljóssins. Englar
stóðu vörð um Jesú, bæði við fæðingu hans, ofsóknir Heró-
desar og flóttann til Egyptalands. Þeir birtust honum í gras-
garðinum, og þeir stóðu vörð við gröf hans.
Englar eru jafnan sendiboðar æðri máttarvalda, þegar
hvörf verða í örlagasögu einstaklinga, þjóða eða mannkyns-
ins alls. Hver maður hefur sinn verndarengil, og trúðu
kristnir menn því til forna, að með skírninni væri mönnum
fengnir slíkir verndarenglar. Svo segir Grímur Thomsen í
Búa rímu Andríðarsonar:
Varðhaldsenglar voru gefnir
í vöku mönnum bæði og svefni.
1 samræmi við þetta segir Ania Teillard, að af öllum íbú-
um himins séu englarnir mönnum næstir, og skipti mestu
máli að vera í sambandi við þá. Einkum eigi þetta við um
varðenglana, sem miðli oss af þeirri orku, sem þeir séu
þrungnir af. Stigi englarnir niður til jarðar og hefji sig aft-
ur þaðan, á öldum söngs og ilms og reykelsis. Einstöku
menn hafi óslökkvandi þrá til að skapa sér slíkan stiga til
himins, með hugrenningum sínum og bænum, og séu það
dulrænir menn, sannir listamenn og skáld.