Morgunn


Morgunn - 01.12.1967, Page 6

Morgunn - 01.12.1967, Page 6
84 MORGUNN breytni þess, sem fyrir þá mátti kaupa, fór sífellt vaxandi, eftir því sem framleiðsla varningsins varð fjölbreyttari og meiri. Hér á landi varð þessi þróun tiltölulega mjög hægfara, og raunar alveg fram á þessa öld. Peningar voru sjaldgæfir hér og í fárra manna höndum. Viðskiptin við önnur lönd voru aldrei mjög mikil vegna einangrunar landsins og aðal- lega í vöruskiptum. Menn urðu því að búa að sinu og reyna að vera sjálfum sér nógir um flest. Landið var óræktað, sjáv- araflinn svipull vegna þess hvað aflatækin voru léleg. Það var því ekki unnt að gera samskiptin við landið, né heldur við sjóinn, að venjulegum viðskiptum. Þar var miklu fremur um gjafir að ræða. Sjálft málið bendir Ijóst á þetta. Það var talað um góðar gæftir, eða vel eða illa gæfi á sjóinn. Þetta voru ekki viðskipti, heldur fyrst og fremst gjafir. Það var talað um að gefa fénaðinum heyið. Það var ekki litið á þetta sem viðskipti, þar sem fénaðinum væri selt fóðrið fyrir af- urðirnar. 1 minni æsku heyrði ég miklu oftar talað um að gefa og þiggja, en að selja og kaupa. Gestum var þá aldrei seldur greiði. Bændurnir hjálpuðu hver öðrum án þess að reikna það til verðs eða iauna. Ég held, að ég hafi verið kominn fast að fermingaraldri, áður en ég keypti nokkurn skapaðan hlut, að heitið gæti. Allt, sem ég átti og eignaðist, voru gjaf- ir. Og ég vissi upp á hár um hvern minn hlut, hver hafði gefið mér hann, og jafnvel hver hafði búið hann til. Þannig var um leikföngin mín, karlana, sem bróðir minn tálgaði úr skógviðarbálkum, smáa fugla úr ýsubeinum, litla sleðann minn og margt fleira. Ég vissi hver hafði gert skóna mína, prjónað sokkana og vettlingana, ofið tvistdúkinn í skyrtuna og vaðmálið í buxurnar. Og þannig var einnig um flest hin fábrotnu húsgögn. Maður vissi hver hafði smíðað þau, og hafði jafnvel sjálfur horft á, þegar sumt af þessu var gert. Fyrir vikið varð maður eitthvað svo nákunnugur hlutunum; þeir urðu svo að segja lifandi, og sambandið við þá einkenni- lega innilegt, eins og væru þeir beinlínis lífi gæddir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.