Morgunn - 01.12.1967, Blaðsíða 15
MORGUNN 93
Um þessar rannsóknir skrifaði prófessor James í Psycho-
logical Review árið 1938:
„Dr. Hodgson lítur svo á, að svik af hálfu frú Piper geti
ekki hafa komið til greina. Ég er honum þar algjörlega sam-
mála. Þessi miðill hefur verið undir eftirliti, og oftast mjög
ströngu eftirliti um allt það, sem snertir líf hennar og hegð-
un. Það eftirlit hefur verið framkvæmt í hart nær 15 ár, og
í því hafa margir tekið þátt, sem höfðu fullan hug á því að
reyna að finna eitthvað grunsamlegt í fari hennar. Á öllum
þessum tíma hefur ekki komið í ljós eitt einasta tortryggi-
legt atriði, né heldur gátu menn gefið nokkurn snefil af skyn-
samlegri skýringu á því, hvernig miðill hefði með eðlilegum
hætti getað aflað sér þeirrar vitneskju, sem fram kom á
fundum hennar, varðandi allan þann fjölda gesta, er fundi
hennar sátu.“
F. W. H. Myers segir um hana árið 1890:
„Þegar á allt er litið, er ég sannfærður um það, að allir
þeir, sem setið hafa fundi hjá frú Piper, bæði í Ameríku og í
Englandi, hafi séð nóg til þess að geta lokið upp um það ein-
um munni:
1. Að margt það, sem hún sagði frá í miðilsástandi, var
þannig, að hinn slyngasti leynilögreglumaður hefði ekki
getað grafið það upp.
2. Að afla sér þekkingar um ýmis önnur atriði, sem þar
komu fram, og kynni að hafa verið mögulegt, hefði hlotið
að kosta frúna miklu meiri tíma og fé en hún gat haft ráð á.
3. Að framkoma hennar hefur aldrei gefið hið minnsta
tilefni til að væna hana um svik, og hafa þó fáar manneskjur
verið jafn umsetnar og hún. En allir, sem bezt fylgdust með
daglegri framkomu hennar, töldu hana bera vott um ein-
lægni, hreinleika og ráðvendni.“
Að lokum skulu tilfærð orð prófessors James H. Leuba,
sem var einn af hörðustu andstæðingum spiritismans, og
trúði alls ekki á framhald lífs eftir dauðann. Hann sagði
árið 1916:
„Heiðarleiki frú Piper hefur aldrei verið dreginn í efa.“