Morgunn - 01.12.1967, Qupperneq 16
94
MORGUNN
Frú Thompson.
Hún var einnig nafnkunnur enskur miðill, fædd árið 1868.
Á miðilshæfileikum hennar tók fyrst að bera fyrir alvöru
1896, og tveim árum síðar gekk hún í þjónustu Brezka sálar-
rannsóknafélagsins.
Árið 1902 sat frú Verall hjá henni 22 fundi, og gaf ná-
kvæma skýrslu um það, sem gerðist. Af 235 fullyrðingum
frúarinnar á þessum fundum, sem ýmist snertu nútíðina eða
það, sem liðið var, reyndist 141 vera hárréttar, 33 rangar, en
64 vera þannig, að ekki var unnt að ganga úr skugga um
sannleiksgildi þeirra. Um 90 þessara réttu atriða skal tekið
fram, að útilokað var, að frúin hefði getað fengið um þau
vitneskju með eðlilegum hætti, en um hin (51) hefði frúnni
getað verið mögulegt að öðlast rétta vitneskju með eðlilegu
móti. Um þessar tilraunir sagði Frank Podmore 1911: ,,Það
verður að viðurkenna, að þessi tala er svo há, að ekki getur
verið um neina hendingu eða getgátur að ræða.“
Dr. Van Eeden sat nokkra fundi hjá frú Thompson vetur-
inn 1899 og aftur í júnímánuði árið 1900. Þessi maður var
Hollendingur og frúin vissi engin deili á honum. Eigi að síð-
ur sagði hún honum mjög margt, bæði um hann sjálfan,
ættingja hans og umhverfi, sem allt var satt og rétt. En það
einkennilegasta, sem fram kom, var varðandi ungan mann í
Hollandi, sem framið hafði sjálfsmorð á þann hátt, að fyrst
reyndi hann að skera sig á háls, en skaut sig síðan. Dr. Van
Eeden hafði með sér hálsklút, sem þessi piltur hafði átt. En
pilturinn hafði þá fyrirfarið sér fyrir 15 árum. Hann full-
yrðir, að enginn lifandi maður hafi um það vitað, að hann
tók klútinn með sér. En er á fundinn kom hjá frú Thompson,
kemur þessi ungi maður þegar í sambandið. Van Eeden þótt-
ist að vísu þekkja, að þetta væri hann. En þegar hann fór
að hugsa um þetta síðar um kvöldið, vöknuðu þó hjá honum
efasemdir, og honum fannst, að ekki hefði allt staðið heima,
sem frúin sagði. En nokkrum dögum seinna gerðist það á
fundi, sem hann sat hjá frú Thompson, að þessi ungi maður