Morgunn - 01.12.1967, Qupperneq 31
MORGUNN
109
Hann heldur því meira að segja hiklaust fram, að trúin
geti orðið svo máttug og sterk í mannsbrjóstinu, að engin
takmörk séu fyrir því, hve miklu hún geti til leiðar komið.
„Sá getur allt, sem trúna hefur,“ segir hann. Hún getur
jafnvel flutt fjöll úr stað.
Ég hef nú sýnt fram á það, að trúin eða trúarhvötin sé
í raun og veru ein og öllum sameiginleg. Þar er sjálfur kjarn-
inn óbreytilegur og í eðlið gróinn. Trúarbrögð, sem oft eru
ranglega nefnd trú, eru hins vegar umbúðir mannanna um
þennan kjarna, og þeir farvegir, sem trúarhvötinni er beint
í hverju sinni. Þessar umbúðir eru margbreytilegar og far-
vegirnir ólíkir. Trúarbrögðin eru mörg, þó trúarhvötin sé
ein. Trúarbrögðin eru verk mannanna, en trúarhvötin er
gjöf Guðs. Mörg trúarbragðanna eiga sér þekktan, söguleg-
an uppruna, og eru beinlínis kennd við höfunda sína: Búddha,
Múhamed o. s. frv. Svo er og um kristna trú, eins og allir vita.
Trúarbrögð eru meira og minna samfellt, rökbundið kerfi
kenninga og fullyrðinga. Og það er f jarri mér að gera lítið
úr þeim né þýðingu þeirra. Vafalaust hafa þau og þær sterku
og voldugu stofnanir og kirkjur, sem í skjóli þeirra hafa
risið, yfirleitt haft örvandi og styrkjandi áhrif á trúarhvöt
manna.
Hinu verður þó ekki með rökum neitað, að vald þessara
stofnana hefur oft verið herfilega misnotað. Dýrkun bók-
stafsins og skilyrðislaus kx'afa urn samsinning trúarbragða-
kenninganna hafa víða orðið fjötur á frelsi andans og leitt
til hugsanakúgunar. Ti'úarbrögðin leiða menn þrásinnis til
ofstækis og öfga, jafnvel haturs og hryllilegra ofsókna á
hendur þeim, sem efuðust um sannleiksgildi játningari’it-
anna eða aðhylltust önnur trúarbrögð. Auðfundin og ófá ei’u
dæmin um þetta í trúarbragðasögunni. Þröngsýn trúarbrögð
geta beinlínis veikt og lamað sjálfa trúarhvötina.
Trúarbrögð er unnt að læra, enda eru þau víða kennd í
skólum líkt og aðrar námsgreinar, einnig hér á landi. Trú-
fi’æði (dogmatik) er einnig kennd í æðri skólum. En þessi
kennsla nægir engan veginn til þess að gera menn trúaða