Morgunn


Morgunn - 01.12.1967, Síða 33

Morgunn - 01.12.1967, Síða 33
MORGUNN 111 þess að efla og tendra trúarhvötina. Fegurð og tign hinnar ytri náttúru orkar á sál okkar í þá átt. Hin stórfenglegu musteri, þeir voldugu og fögru hljómar, sem hvelfingar þeirra fylla, helgisiðirnir, reykelsisilmurinn, allt þetta ork- ar á hugann, vekur trúarhvötina, lotninguna og tilbeiðslu- þrána. Þetta hefur kaþólska kirkjan skilið og notfært sér betur en sú lútherska. Hin litla, látlausa kirkja getur einnig orkað á hugann, vakið og styrkt trúarhvötina, ef í því húsi er að finna sam- ræmi og tæra fegurð. Slík fegurð birtist ekki síður í hinu yfirlætislausa og smáa. Hins vegar verkar tildrið og tilgerð- in jafnan í öfuga átt. Þetta mættum vér íslendingar ekki sízt hafa í huga. Frá upphafi vega hafa táknrænir hlutir og myndir haft sterk áhrif trúarhvötinni til eflingar og fært sjálfan guð- dóminn, kraft hans og tign, nær mönnunum, ef svo mætti segja. Því var það, að með þeim þjóðum, sem litu á Guð fyrst og fremst sem hinn fjarlæga og heilaga himnaguð, sem ekki mætti gera af neinar myndir og jafnvel ekki nefna hann á nafn, fór svo, að trúarhvötin átti örðugra með að ná sam- bandi við hann. Og af þessum sökum mun það einkum hafa verið, að innan kaþólsku kirkjunnar færðist dýrkunin meðal almennings í æ ríkara mæli yfir á Krist, heilaga Guðsmóður og hina mörgu dýrlinga. Þeim voru reist sérstök ölturu, og fyrir framan myndir þeirra kveiktu menn á kertum sínum og fluttu þeim heitar bænir. Þar fundu menn dularfulla ein- ing hins guðlega og mannlega, og fyrir það varð sambandið innilegra og áhrifin sterkari og fyllri. Það er staðreynd, studd af langri reynslu, að trúarhvöt mannsins, sem ekki er blind eins og eðlishvöt dýrsins, heldur sjáandi, þarf jafnan að geta eygt tilbeiðsluefni sitt að ein- hverju leyti, skynjað það í myndrænu formi, hvort heldur það er guðdómurinn sjálfur, hugsjón eða takmark til þess að þrá og keppa að, eða fyrirmynd til þess að dá og tigna. Þannig er þetta enn í dag. Trúarhvötin er enn lifandi og sterk í brjóstum mannanna. Það er ekki unnt að kæfa hana
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.