Morgunn


Morgunn - 01.12.1967, Page 34

Morgunn - 01.12.1967, Page 34
112 MORGUNN vegna þess, að hún er okkar innsta eðli samgróin. En það er líka staðreynd, sem vert er að gefa gaum, að hún fær ekki fullnægingu í þunglamalegum og oft þrautleiðinlegum stólræðum prestanna né heldur í aldagömlum játningum, jafnvel þó það takist með ærinni fyrirhöfn að kenna ungling- unum eitthvað af þeim utanbókar. Um þetta ber þverrandi kirkjusókn víða um heim órækt vitni. Þegar svo er komið, leitar trúarhvötin sér útrásar annars staðar. Og þá getur svo farið, að hún lendi í þá farvegu, sem eru ekki aðeins óæskilegir, heldur beinlínis skaðlegir og hættulegir. Ég nefni í þessu sambandi Hitlers-dýrkunina, Stalín-dýrkunina og nú síðast hina öfga- og ofsafengnu dýrkun Maos formanns í Kínaveldi. Einnig má minna á ýms- ar öfgar í skemmtanalífinu, áróður flokkanna í stjórnmál- um, þar sem róleg íhugun og sjálfstæð dómgreind er látin lönd og leið, en taumlaus æsing og múgsef jun fær yfirhönd- ina. Hér eru ljós dæmi þess, hvernig unnt er að hagnýta sér trúarhvöt manna í annarlegum tilgangi og jafnvel beinlínis í þjónustu þess illa. Þessar og fleiri hættur í sambandi við ófullnægða trúar- hvöt fólksins, verða allir hugsandi menn, og þá ekki sízt prestarnir, að gera sér ljósar og hef jast handa um úrbætur, áður en það er orðið um seinan. Og ég er í engum vafa um það, að á þessum sviðum er unnt að áorka miklu, ef vilji og vit er fyrir hendi og rétt og skynsamlega er að farið. Við höfum flest orðið sjónar- og heyrnarvottar að endur- teknum staðreyndum þess, að tekizt hefur í mörgum lönd- um á skömmum tíma með hjálp vaxandi og voldugra tækja að beina trúarhvöt milljónanna að dýrkun dauðlegra manna og gera þá að leiðtogum og guðum fólksins, ekki til þess að hef ja hugina hærra, heldur til þess að draga þá niður á svið dýrsins, vekja upp haturshug og grimmd og æsa til ofstækis og hryðjuverka, viðbjóðslegri og stórfelldari en sagan áður hafði dæmi um. En úr því að unnt reyndist að misnota trúar- hvötina svo herfilega til tjóns og smánar og eyðileggingar, og þvert í gegn því, sem henni hlýtur að hafa verið ætlað, er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.