Morgunn - 01.12.1967, Page 38
Estella Roberts
☆
Estella Roberts er án efa ein hinna f jölhæfustu miðla, sem
starfað hafa í Englandi á þessari öld. Auk venjulegrar mið-
ilsgáfu hafði hún lækningagáfu í ríkum mæli. Líkamningar
birtust einnig á fundum hennar. Skyggnigáfa hennar var á
mjög háu stigi og skyggnilýsingar hennar oft frábærar.
Stjórnandi hennar á transfundum var jafnan hinn sami og
nefndi sig Red Cloud eða Rauða skýið. Sjálfstæðar raddir
voru og algengar á fundum hennar, og var þá talað í gegn
um létta lúðra eða talpípur, sem þá oft svifu um í stofunni.
Estella Roberts fæddist 10. maí 1889. Og þegar á barns-
aldri tók að bera á dulhæfileikum hennar. Barnið heyrði
raddir, sem aðrir urðu ekki varir við, og töldu aðeins vera
hugarburð hennar. Hún taldi sig og þá hafa stöðugt sam-
band við bróður sinn, sem dó áður en hún fæddist, á fyrsta
eða öðru ári. Ung missti hún föður sinn, og fimmtán ára
gömul fór hún alfarin að heiman og réðist barnsfóstra til
fjölskyldu í Turnham Green. Nokkru seinna giftist hún
ágætum manni, H. W. Miles að nafni. Þau unnust hugást-
um, og við hann gat hún óhikað og í fullu trausti rætt um
dulgáfur sínar. Þau voru að vísu fátæk, og stundum fremur
þröngt í búi, enda þrjú börn ung að fæða og klæða. En ham-
ingjusöm voru þau, og það var fyrir öllu.
Fljótlega dró þó dapurieg ský fyrir hamingjusól hinna
ungu hjóna. Maður hennar missti heilsuna eftir aðeins átta
ára sambúð, og var að mestu leyti óvinnufær eftir það og
oft rúmliggjandi, unz hann dó vorið 1919. Þetta voru örð-
ugustu ár ævi hennar. Henni tókst um skeið að fá starf á