Morgunn


Morgunn - 01.12.1967, Page 50

Morgunn - 01.12.1967, Page 50
128 MORGUNN mín hefur lesið blaðið yðar, og hún hefur beðið þess heitt og innilega, að hinn mikli stjórnandi, Red Cloud, hjálpaði mér til að komast hér í samband." 1 blaði um sálarrannsóknir, sem ég þá var ritstjóri að, hafði ég minnzt á fundi hjá Estellu Roberts. Ég kvaðst skyldu koma boðum til móður hennar þegar næsta dag. „Segðu mömmu, að ég sé með löngu fléttingana ennþá. Ég er tuttugu og tveggja ára og bláeygð. Segðu henni, að mig langi til að hún komi hingað. Geturðu náð í hana. En hún er ekki rík,“ bætti hún við. „Hún er bláfátæk.“ „Ég skal reyna, hvað ég get,“ svaraði ég. „Henni líður illa,“ hélt Bessy áfram. „Hún segist hafa misst okkur fyrir fullt og allt. Þú ætlar að hjálpa henni — er það ekki? Guð blessi þig, ef þú gerir það. Og ég þakka þér — þakka þér þúsund sinnum.“ „En ég þarf að vita, hvar hún á heima. Annars get ég ekki komið boðum til hennar,“ sagði ég Svarið kom hiklaust. „Ég skal segja þér það. Hún á heima í Canterbury Street 14 í Blackburn.“ Ég sagði þá við Red Cloud: „Eru ekki þúsundir mæðra, sem þrá huggun á sama hátt og þessi kona?“ „Jú. En ég hef ekki ráð nema á þessum eina farvegi til þess,“ svaraði hann dálítið dapurlega. „Hefurðu nokkuð á móti því, að henni verði boðið hingað á næsta fund?“ spurði ég. „Ég? — Það er undir þér komið,“ sagði hann. Ég hafði aldrei heyrt getið um Bessy Manning. Ég hafði ekki hugmynd um hver móðir hennar var, eða hvort hún ætti heima þarna í Blackburn. En reynsla mín af Red Cloud var slík, að ég efaðist ekki um, að skilaboðin væru rétt. Morguninn eftir sendi ég frú Manning í Canterbury Street 14 í Blackburn eftirfarandi símskeyti: „Bessy, dóttir yðar, talaði við okkur í gærkveldi á fundi með Red Cloud.“ Ég fékk ekkert svar og sendi því annað skeyti. Tveim dög-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.