Morgunn - 01.12.1973, Blaðsíða 43
HVER VAR FÁST?
121
þerunan furðulega mann. Hér vinnst ekki tími til þess að telja
það upp. En eins vil ég þó geta að lokum. Það er vaxborinn inn-
siglaður leðurpungur, sem fannst í holum, reyklituðum eikar-
bjálka i Knittlingen. 1 honum fannst fornlegt skjal með ýms-
um formúlum til þess að ná valdi á alls konar vættum; svo og
leyniletur til þess að beita gegn tjóni eða eyðingu af eldi, og að
lokum töfraferhyrningur, sem ekki er síður athygli verður en
tölurnar, sem fyrr voru nefndar:
S A T O R
A R E P O
T E N E T
0 P E R A
R O T A S
Meðal tóbaksekra, blómlegra ávaxtagarða, útskorinna veg-
vísa og vinalegra tréhúsa í þessum hljóðláta bæ, Knittlingen,
myndu fæstir vænta svona furðulegra hluta. En í þessum
forna smábæ, sem mnheimurinn kann engin skil á, fæddist
þjóðsögn, sem enn er á hvers manns vörum. Þar er að finna
eina minnismerkið um manninn, sem kom þessu öllu af stað,
eftirtektarverðan Fást-brunn til minningar um þennan óvenju-
lega heimsborgara.
Fást var maður andstæðnanna. Hann bauð sjálfum náttúru-
lögmálunum byrginn, reyndi að skilja allt á jörðu og himni. Að
nokkru snillingur, en hins vegar skrumari. Stuðningsmaður
heljar með neista af heilagleik, sem teygði sig djarfur til stjarn-
anna, en engu að síður kvalinn af efasemdum og ótta. Og þrátt
fyrir allt vafalaust fyriiTennari þeirra, sem leystu atómið úr
læðingi og tunglfara tuttugustu aldar.