Fréttablaðið - 04.11.2010, Side 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
KJARAMÁL Kaupmáttur tekjulægstu
heimila landsins skertist um 6,6
prósent á milli ára í fyrra eftir
skatt og er kaupmáttur þeirra sam-
bærilegur og árin 2006 til 2007. Á
sama tíma skertist kaupmáttur
þeirra tekjuhæstu um 28,2 pró-
sent. Hann færðist aftur um sex
ár ef miðað er við lok síðasta árs.
„Þetta sýnir að aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar sem áttu að milda
áhrif kreppunnar á lægri tekju-
hópa hafa gengið eftir. Þeim var
hlíft við áhrifum skattahækkana,“
segir Stefán Ólafsson, prófessor í
félagsfræði og forstöðumaður
Þjóðmálastofnunar, sem fjallar um
málið í nýjasta fréttabréfi sínu.
Umfjöllunin byggir á þróun
launatekna samkvæmt álagningu
Ríkisskattstjóra síðastliðin tvö ár.
Þar kemur fram að launatekjur
drógust almennt saman um fimmt-
án prósent milli áranna 2008 og
2009 á sama tíma og fjármagns-
tekjur af arði, vöxtum og söluhagn-
aði drógust saman um 36 prósent
að raunvirði.
Stefán bendir á að tekjulægstu
heimilin hafi notið góðs af hækkun
persónuafsláttar og barna- og
vaxtabóta í fyrra á sama tíma
og auðlegðarskattur, lægri fjár-
magnstekjur og rýrari launatekj-
ur komu harðar niður á tekjuhæsta
hópnum. „Tekjur þessa hóps hækk-
uðu mikið meira en annarra áður.
Hann er enn með tvöfalt meira
forskot,“ segir Stefán og bætir
við að þrátt fyrir skerðingu tekju-
hæsta hópsins hafi kaupmáttur
hans verið 37,7 prósentum hærri
í lok árs 2009 en árið 2000. Kaup-
máttur tekjulægsta hópsins jókst
um 18,4 prósent á sama tíma.
Stefán telur spár um allt að
tuttugu prósenta kaupmáttarrýrn-
un hafa gengið eftir að mestu í
fyrra. Búast megi við bata á þessu
ári og því næsta.
Kjarasamningar verða lausir í lok
mánaðar. Fram kom á vaxtaákvörð-
unarfundi Seðlabankans í gær að
launahækkanir umfram 3,5 til 4,0
prósent geti tafið fyrir bata efna-
hagslífsins. Stefán bendir á að hald-
ist laun í hendur við verðbólgu þá
muni kaupmáttur haldast óbreytt-
ur. „Allt undir því er kjaraskerð-
ing,“ segir hann. - jab / sjá síðu 6
Fimmtudagur
skoðun 22
4. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Elle tók nýlega saman lista yfir nokkur svöl sólgleraugu
sem heppilegt þykir að skarta í vetur, þær fáu stundir
sem sést til sólar. Þeirra á meðal voru þessi frá vöru-
merkinu Juice, sem eru að hluta búin til úr umhverfis-
vænum efnum og seld í vistvænum umbúðum.
Þ að eru kannski ekki margir sem bíða með eftirvænting f sem fagna ávallt komu hansÞessi á
Sigrún Edda Eðvarðsdóttir tekur prúðbúin á móti Vetri konungiÍ kjól hvernig sem viðrar
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvaliwww.gabor.is
Sérverslun með
Sími 581 2141 • www hj h
20% afslátturaf öllum skóm og stígvélum frá MELVIN & HAMILTON
Skór
KYNNING
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Skór
veðrið í dag
4. nóvember 2010
259. tölublað 10. árgangur
Nú í bíó
Kristján Jóhannsson óperusöngvari leggur
spilin á borðið í áhrifamikilli ævisögu
Ötull, dáður, umdeildur
La
tib
æ
r
®
&
©
2
01
0
La
tib
æ
r
eh
f.
Ö
ll
ré
tt
in
di
á
sk
ili
n.
KRAKKA
DAGAR
4.-8. NÓVEMBER
Sjá
dagskrá o
g
tilboð á
smaralind
.is
Halldóra Gunnarsdóttir
Heldur fyrirlestur um
ástina í Öskju.
tímamót 28
Á tímamótum
Marín Manda er komin
með heimþrá eftir níu ár
í Kaupmannahöfn.
fólk 58
SKÝJAÐ OG VÍÐA ÉL Í dag má
búast við N- og NA-áttum, víða 5-
10 m/s en heldur hvassara verður
við suðausturströndina. Horfur eru
á éljum víða um land. Vægt frost
norðan til en allt að 4°C allra syðst.
VEÐUR 4
1
-1
-2
-2
0
FÓLK Karl Júlíusson leikmynda-
hönnuður hefur verið beðinn um
að vinna að næstu mynd Kat-
hryn Bigelow
sem kom, sá og
sigraði á síð-
ustu Óskars-
verðlaunahátíð
með kvikmynd-
inni The Hurt
Locker.
Kvikmyndin
gengur undir
nafninu Sleep-
ing Dogs og
gerist í Suður-
Ameríkulöndunum Paragvæ,
Argentínu og Brasilíu en mynd-
in sjálf verður væntanlega tekin
upp í Argentínu og Síle. „Verkefn-
in verða ekki stærra en þetta,“
segir Karl í samtali við Frétta-
blaðið en Tom Hanks og John-
ny Depp munu væntanlega leika
aðalhlutverkin. - fgg / sjá síðu 58
Karl Júlíusson í góðum hópi:
Vinnur með
Bigelow á ný
71 ÁR SKILUR AÐ „Ég ætla að fá að leggjast í sófann,“ sagði Ingibjörg þegar hún hafði tekið á móti gestunum. Hún fótbrotnaði
nýlega og er rétt farin að ganga aftur en ætlar ekki að láta það aftra sér frá því að mæta á Þjóðfundinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓLK „Þeir báðu mig að mæta. Ef
allir segðu nei, hvað þá? Einhver
verður að vinna skítverkin,“ segir
Ingibjörg Tönsberg. Hún er á leið
á Þjóðfundinn í Laugardalshöll um
helgina og er elsti fulltrúinn á þing-
inu, 89 ára gömul. Hún viðurkenn-
ir þó að hafa alla tíð haft áhuga á
stjórnarskránni.
Steinunn Hlíf Guðmundsdóttir
er yngsti fulltrúinn á fundinum,
verður ekki átján ára fyrr en seint
í mánuðinum. „Þetta verður örugg-
lega gott í reynslubankann,“ segir
hún. Fréttablaðið hitti þær saman á
heimili Ingibjargar í gær og frædd-
ist um skoðanir þeirra á fundinum
og fyrirhugaðri endurskoðun á
stjórnarskránni.
Þær segjast ekki hafa myndað
sér sérstaka skoðun á því hvað megi
betur fara í stjórnarskrá Íslands, en
Ingibjörg tiltekur þó að sjálfstæðið
sé mikilvægast af öllu.
Þær telja að þrátt fyrir að 71 ár
skilji þær að í aldri séu þær senni-
lega að stórum hluta sammála um
grunngildin. Markmiðið sé ósköp
einfaldlega að allir hafi það sem
best. - sh / sjá síðu 8
Elsti og yngsti fulltrúinn á Þjóðfundinum eru bjartsýnir á skynsama niðurstöðu:
Önnur 89 – hin ekki orðin átján
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
Kaupmáttur hefur rýrnað mismikið eftir tekjuhópum
Hversu mörg ár aftur í tímann hefur kaupmátturinn færst?
Tekjulægsti launahópur
Meðaltekjur
Tekjuhæsti launahópur
Tekjulágir misstu minnst
Kaupmáttur tekjulægstu heimilanna dróst saman um 6,6 prósent á milli ára í fyrra. Þeir sem hafa hæstu
tekjurnar misstu hins vegar 28,2 prósent kaupmáttar. Sýnir að stjórnvöld vörðu tekjulága, segir prófessor.
KARL JÚLÍUSSON
Meistarajafntefli
Real Madrid nældi í
dramatískt jafntefli gegn
AC Milan í gær.
sport 52