Fréttablaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 33
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
STÝRÐU UMRÆÐUNNI Í ÁTT TIL ÞÍN
Meiri Vísir.
Svartar kápur st. 36-46
áður 19990
nú 14990
Kápur st. 42-56
áður 29990
nú 23990
Peysur
áður 14990
nú 9990
Peysur
áður 9990
nú 4990
Margar gerðir
Konukvöld, opið til kl 22 í kvöld.
Inniheldur Q10 og C vítamín, A og E vítamín.
Blæs nýju lífi í húðina og hún fær sinn upprunalega ljóma.
Verndar húðina gegn umhverfisáreyti og dregur þannig úr
ótímabærum öldrunareinkennum.
Sölustaðir á stór–Reykjavíkursvæðinu:Hagkaup í Kringlu, Holtagörðum, Skeifu,
Smáralind, Spöng og Njarðvík, Nana snyrtivöruverslun Holagarði, Lyfjaval Mjódd,
Reykjavíkur Apótek, Laugarnes Apótek.
Sölustaðir á landsbyggðinni: Hagkaup Akureyri, Betri líðan Akureyri,
Apótek Vesturlands Akranesi og Miðbær Vestmannaeyjum.
Daily Care dag- og næturkremið.
„Ég sæki minn innblástur í nátt-
úruna, út í garð þar sem ég tíni
laufblöð, blóm og annan gróður
og smíða svo eftir þeim á mismun-
andi stigi þurrkunar. Þarf ekkert
að leita lengra þar sem þessir fal-
legu hlutir eru þarna á jörðinnni,“
segir Orri Finnbogason gullsmiður,
sem er farinn að hanna og smíða
skartgripi undir
merkinu Orri
F inn Design
og hefur feng-
ið góðar undir-
tektir.
Tíska og hönn-
un hafa verið
Orra hugleik-
in alveg frá því
hann man eftir
sér. Áhuginn
leiddi til þess að
hann afréð að
verða gullsmið-
ur en vegna þess hversu illa gekk
að komast á samning á Íslandi
ákvað hann að freista gæfunnar og
flytjast til New York árið 1995.
„Þar komst ég loks inn á stofu
sem sérhæfði sig í demantaísetn-
ingu og smíði og var settur í hlut-
verk svokallaðs „runner“ áður en
ég fékk eitthvað að smíða; þvæld-
ist stundum um borgina með vasa
fulla af rándýrum demöntum og
skarti,“ rifjar hann
upp og getur
þess að smám
saman hafi
hann feng-
ið að fikra
sig yfir í
smíði og dem-
antaísetningu og meðal
annars unnið verkefni
fyrir skartgripafyrirtækið Tiff-
any´s og heimsfræga tískuhönnuði
á borð við Veru Wang.
Orri bjó og starfaði að
mestu leyti í New York í
fimmtán ár, með stuttu
hléi þó þegar hann
sneri heim og dvaldi
hér í stutta stund til
að ljúka námi. Í New
York hannaði hann og
seldi eigin skartgripi.
Á síðasta ári flutti hann
svo heim til Íslands og er nú eins
og áður sagði farinn að selja grip-
ina hérlendis. „Ég byrjaði bara á því
að stofna Facebook-síðu undir Orri
Finn Design og fékk góðar viðtök-
ur,“ segir hann, og það eru orð að
sönnu þar sem hann hefur eignast
yfir 3.000 aðdáendur og skartið því
augljóslega ekki síður vinsælt meðal
Íslendinga en erlendra tískurisa.
Það er nú fáanlegt í Kraumi og hjá
Jens í Kringlunni.
roald@frettabladid.is
Smíðaði fyrir Veru Wang
Gullsmiðurinn Orri Finnbogason hefur starfað að mestu leyti í New York síðustu 15 ár og ljáð stórum
nöfnum í tískubransanum krafta sína. Hann hannar og smíðar eigin skartgripi sem njóta vinsælda.
„Ég tíni laufblöð, blóm og annan gróður
og smíða svo eftir þeim á mismunandi
stigum þurrkunar,“ segir Orri, sem sækir
innblástur í náttúruna.
MYND/HALLGRÍMUR GUÐMUNDSSON
Orri Finnbogason
hefur unnið fyrir
stór nöfn í tísku-
bransanum.