Fréttablaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 38
4. NÓVEMBER 2010 FIMMTUDAGURVerð: 29.995.-
Stærðir: 36-41
Verð: 11.995.-
Stærðir: 36-41
Verð: 12.995.-
Stærðir: 36-41
Verð: 22.995.-
Stærðir: 36-41
(fást einnig Svört
með silfurrennilás að
aftan)
Kaupfélagið er skóverslun
í Smáralind og Kringlunni.
Úrvalið er afar fjölbreytt bæði
fyrir konur og karla. Elísabet
Weisshappel Vilhjálmsdóttir,
verslunarstjóri í Smáralind,
segir frá því sem er vinsælast
í dag.
„Fyllti hællinn, eða svokallaði
wedge-hællinn, hefur verið áber-
andi í nokkurn tíma en nú sækj-
ast enn fleiri eftir því að klæðast
slíkum skóm, bæði ungar stelpur
og eldri konur,“ segir Elísabet og
bætir við að í Kaupfélagið komi
mjög breiður aldurshópur þó að
flestir séu á aldrinum sextán ára
til fertugs, bæði karlar og konur.
En hvað annað er vinsælt? „Það
eru gróf stígvél og hermanna-
klossar. Einnig skór með jafn-
fylltum botnum, sem eru þá jafn-
þykkir í hælinn og fram í tá. Við
erum líka með mikið af reimuð-
um skóm sem bæði má fá með
fylltum hæl eða sem hermanna-
klossa,“ segir Elísabet. Hún telur
breiðum hælum vera að fjölga
mikið og þeir séu þá oft úr tré,
en einnig séu vinsælir nokkurs
konar háhælaðir tréklossar sem
negldir eru með járnhnöppum til
skrauts.
Elísabet segir leðrið líkt og
áður vinsælasta efnið í skónum.
Þó sé rússkinnið einnig að sækja
í sig veðrið. „Svarti liturinn er
klassískur en við erum einnig
að fá brúna liti, svo og kamel- og
drapplitaða.“
Hvað með tána á skónum, er
hún mjó eða rúnnuð? „Támjóir
skór eru eiginlega alveg dottnir
út og fáir spyrja um slíka. Tærn-
ar á skónum eru fremur rúnnað-
ar enda grófleikinn í öndvegi,“
svarar Elísabet.
Innt eftir því hvort hælar séu
óvenjuháir nú svarar Elísabet að
það sé rétt. „Hælarnir eru mjög
háir og lítið um meðalháa hæla.
Hins vegar er hönnun skónna
yfirleitt þannig að þykkt er undir
táberginu og því virðist hællinn
vera hærri en ella,“ segir hún en
bætir við að fjölbreytnin sé þó
mjög mikil í skóflórunni. Fólk
sæki einnig mikið í flatbotna her-
mannaklossa. „Annars er fjöl-
breytileikinn mjög mikill og við
eigum margs konar týpur sem
höfða til ólíks fólks,“ segir hún
og skorar á fólk að koma og skoða
úrvalið í verslununum.
Grófir hermannaklossar
og fylltir hælar vinsælir
Fylltir hælar eru vinsælastir í dag að sögn Elísabetar Weisshappel Vilhjálmsdóttur verslunarstjóra Kaupfélagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gróf stígvél með grófum hæl
njóta mikilla vinsælda um þessar
mundir hjá viðskiptavinum Kaup-
félagsins. Skórnir sem hér sjást
eru frá hollenska merkinu Bull-
boxer. „Þessir eru flottir í vetur,“
segir Elísabet Weisshappel Vil-
hjálmsdóttir verslunarstjóri, en
grófur botn og gróft leður í skóm
er mikið í tísku þessa dagana.
Kaupfélagið hefur mjög góða
reynslu af Bullboxer og hefur
selt skó frá merkinu í mörg ár.
„Við höfum til sölu mjög breiða
línu frá merkinu, alveg frá pinna-
hælum til grófra klossa,
bæði herra- og dömu-
skó.“
Þess má geta að
Kaupfélagið er með síðu
á Facebook sem heitir
Kaupfélagið Kringlunni/
Smáralind. Þar má fylgj-
ast með fréttum af öllu
því nýjasta sem er í boði
í versluninni, skoða
myndir af nýjustu skón-
um svo og upplýsingar
um þau tilboð sem eru í
gangi.
Endingargóðir frá Bullboxer
Kaupfélagið hefur langa
og góða reynslu af
skóm frá Bullboxer. Þeir
þykja endingargóðir en
einnig flottir en breið
lína kemur frá merkinu,
allt frá pinnahælum til
grófra stígvéla.