Fréttablaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 52
32 4. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Sólveigar
Gísladóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. kyrr, 6. mannþyrping, 8. tala, 9.
röð, 11. frá, 12. frumefni, 14. losti, 16.
í röð, 17. blóðhlaup, 18. ennþá, 20.
komast, 21. velta.
LÓÐRÉTT
1. þurft, 3. þys, 4. fúslega, 5. bjarg-
brún, 7. fíkinn, 10. rotnun, 13. slöngu,
15. morð, 16. húðpoki, 19. núna.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lygn, 6. ös, 8. sjö, 9. róf,
11. af, 12. flúor, 14. girnd, 16. hi, 17.
mar, 18. enn, 20. ná, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. þörf, 3. ys, 4. gjarnan, 5.
nöf, 7. sólginn, 10. fúi, 13. orm, 15.
dráp, 16. hes, 19. nú.
Ég er að reyna
að finna út hvað
ég á að gefa
konunni minni í
jólagjöf...
Hana!
Punkturinn
yfir i-ið!
Nei, sko
fína
voffann!
Flottur
voffi-voff
Fríða! Hálfviti!
Úúúúfff!
Mamma setti
miða með
nestinu mínu
aftur!
Kæri Palli! Ég vona að
dagurinn þinn verði
eins bragðgóður og
þessi samloka.
Ástarkveðja, mamma.
Þetta er svoooo
rosalega sætt!
Lestu þetta
fyrir mig
aftur!
Bara ein
setning??
Þegar stóri vísirinn er á níu
og litli á sjö, þá er tímabært
að fara í skólann.
ÚT Í BÍL SVO VIÐ
VERÐUM EKKI SEIN
ENN EINU SINNI!!!
Hin leiðin er svo að bíða
bara eftir að æðin á hálsin-
um á mömmu er að springa.
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á:
visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
Ég stóð frammi fyrir því fyrir nokkru að missa góðan vin minn til margra
ára. Þessi vinur minn er traustur og trúr,
skapgóður en stríðinn, ljúfur í lund en á
það til að vera fjandi frekur þegar sá gáll-
inn er á honum. Þessi vinur minn hefur
líka fjóra fætur og loðinn búk enda stór og
stæðilegur hestur.
OFT hef ég heyrt menn ræða háðslega
um fólk sem tengist gæludýrum sínum
sterkum böndum. Finnst fáránlegt að
dauði heimilishundsins eða -kattar-
ins geti orsakað sorg á borð við þá
þegar nákominn fjölskyldumeðlimur
andast. Talar um það með niðrandi
hætti þegar fólk pantar grafreit og
er hneykslað á því að það geti ekki
tekið gríni um dauða dýrsins.
ÞAÐ er sem mönnum finnist að
fólk sem syrgi dýrin sín geri
lítið úr sorg fólks yfir láti
náinna ættingja. Það minnir
mig á ummæli sem nýlega
voru látin falla, að hjóna-
band samkynhneigðra
rýrði gildi hjónabands-
ins. Sú fullyrðing er í
besta lagi bjánaleg en
jafn furðulegt er að halda
því fram að sorg yfir dýri kasti
rýrð á sorg þeirra sem misst
hafa móður, föður eða bróður. Þó að ættin-
gjamissir sé á allan hátt mun alvarlegri og
hafi víðtækari áhrif skal ekki gera lítið úr
tilfinningum þeirra sem missa sína bestu
vini sem stundum eru á fjórum fótum.
BÖRN geta tekið það sérstaklega nærri
sér þegar dýr fjölskyldunnar kveður. Oft
hafa dýrin lifað lengur en börnin og þau
þekkja því ekki aðra tilveru en þá þar sem
hvutti eða kisa spilaði stórt hlutverk. Oft
getur verið átakanlegt fyrir barnið að sjá
á eftir þessum uppvaxtarfélaga.
DÝRAGRAFREITIR eru starfræktir bæði
á Alviðru undir Ingólfsfjalli og að Hurðar-
baki í Kjós. Þar geta gæludýraeigendur
grafið sín dýr og átt stað til að heimsækja
þau á. Dæmi eru um að fólk heimsæki
grafreitinn reglulega, byggi fallega í
kringum gröfina og leggi þar blóm. Enda
er í sumum tilfellum dýrið eins og eitt
af börnunum. Þá er einnig dæmi um að
fólk taki frá grafir við hlið dýranna fyrir
önnur dýr fjölskyldunnar svo þau geti
legið öll saman.
ÉG var heppin. Vinur minn hélt í líftóruna
og mun vonandi bera mig um grænar
grundir enn um sinn. En við dýraeigendur
vitum að einhvern tíma kemur tími til að
kveðja, það er okkar raunveruleiki. En það
getur verið sársaukafullt fyrir því.
Jafngildar tilfinningar