Kylfingur - 01.10.1935, Qupperneq 15
KYLFINGUR
61
lega kl. 9V& verður athöfnin sett af formanni klúbbsins og siðan
gefur kennarinn nánari skýringar á leiknum. Leikendum verður
raðað saman fyrirfram og verður sú röðun tilkynnt á staðnum
við byrjun leiksins og eins í hvaða flokki menn eru. Það er áríð-
andi að allir mæti stundvíslega, bæði til þess að heyra skýring-
arnar við leikinn og eins til þess, að keppinautar þeirra þurfi ekki
að bíða eftir þeim.
Engin sérstök verðlaun verða veitt í þessari keppni, en sá flokk-
ur, sem tapar, á að gefa hinum, sem vinnur, kvöldverð (án víns)
eitthvert næsta laugardagskvöld á eftir. Við það tækifæri verða
afhent þau verðlaun fyrir kappleika í klúbbnum, sem ekki hafa
þegar verið afhent áður.
Hver keppandi getur unnið mest 4 mörk og eru vinningar hvers
flokks lagðir saman. Hver, sem ekki mætir til leiks, tapar því 4
mörkum fyrir sínum flokki, því allir hafa verið teknir með. Er
þess því vænst, að allir komi og komi stundvíslega.
GOLFKLÚBBUR ÍSLANDS.
Gunnlaugur Einarsson (öðru nafni Ras Tafari) stjórn-
aði „the dubbs“, eða bláliðum, en Valtýr Albertsson (líka
kallaður Mussolini) stjórnaði „the duffers“, sem á ís-
lenzku nefnast svartliðar. Var barist af kappi miklu, með
blóti og brosi, frá kl. 10 að morgni til 5 að kvöldi, og
mátti ekki á milli sjá. Gaf þar að líta stór högg og
snarpar sveiflur og hlífði enginn vopnum né verjum. Lauk
orrustunni svo, að hvorugur sigraði í það sinn, mest fyrir
útreikninga (spekulationir) Þjóðabandalagsins (repres-
enterað af Mr. W. Arneson). Þótti Mussolini það hart,
því hann taldi sér sigurinn vísan; og til þess að fá nokkra
úrlausn, skoraði hann Ras Tafari á hólm. Við því var nú
bláliðakóngurinn ekki búinn; skoraðist hann undan að
berjast við Mussolini, og bar við, að hann hefði ofreynt
sig í undanförnum orrustum, og því ófær til einvígis við
jafn hamraman mann og Mussolini. En er drottning hans
heyrði það og skyldi, að maður hennar mátti ekki til ein-
vígisins fara, tók hún hjálm sinn og brynju, er hún átti
frá valkyrjudögum sínum (en það var þegar hún beið
ósigur fyrir Ras Tafari og giftist honum), og bauðst til
að mæta Mussolini í einvígi. „Er eg nú orðinn svo smár
fyrir atgerðir Edens, að mér hæfi kvenfólk til einvígis“,
sagði Mussolini og varð þungbrýnn við. „Ekki munt þú