Kylfingur - 01.10.1935, Síða 17
KYLFINGUR
68
Vetrar-reglur
fyrir golfleik í Reykjavík, veturinn 1935—*36.
Samdar af Mr. W. Arneson.
1. Ef kylfing virðist bolti sinn á brautx) liggja þannig,
að erfitt sé að slá hann, þá má hann flytja boltann og
leggja hann á annan stað, sem ekki er nær holu og
ekki meira en ein kylfulengd frá þeim stað, sem hann
var í áður.
2. Þegar boltinn er fluttur, skal gera það með kylfu-
hausnum (svo menn freistist ekki til þess að tygja
hann á mold, taði eða öðru). Bolta má aldrei snerta
með höndum, nema samkvæmt því, sem fyrir er
mælt í „the Royal and Ancient Rules“.
3. Legu bolta í torleiði eða hindrunum má ekki bæta á
framannefndan hátt. Lækurinn, sem nefndur er í 2.
gr. í sérreglum Golfklúbbs Islands, telst hindrun í
þessu sambandi.
Athuga. Síkið, sem liggur út úr læknum við kál-
garðinn á 6. holu, og lautin, sem liggur þvert á brautina
á sama stað, eru hindranir, sem ekki má vítalaust taka
bolta upp úr. Sama er að segja um síkið, sem liggur út
úr læknum á holu 2. tír þessum stöðum kostar 1 högg að
taka, eins og læknum. Þegar bolti er tekinn úr læknum,
skurðum eða síki, má láta hann falla 2 kylfulengdir frá
efstu bakkabrún, en ekki fjær, og ekki nær holu.
Ef bolti liggur tæpt í skurðbakka, svo honum verður
varla leikið, má vítalaust flytja hann kylfulengd frá bakk-
anum, en ekki nær holu.
Mold og önnur óhreinindi má þurka af bolta hvenær
sem er, en geta verður þess við keppinaut sinn, að maður
lyfti boltanum aðeins í þeim tilgangi.
1) Til brautar telst ekki teigur, flöt, skurðir, lækir, torfærur,
óslægja, eða annað torleiði, og nær þessi regla því ekki til slíkra
staða.