Fréttablaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 80
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Næg verkefni hjá RÚV
Þórhalli Gunnarssyni virðist ætla
að ganga illa að segja skilið við Rík-
isútvarpið. Frægt varð þegar hann
hætti óvænt sem dagskrárstjóri
Sjónvarpsins og ritstjóri Kastljóssins
í byrjun árs en skömmu síðar dúkk-
aði hann aftur upp sem umsjónar-
maður Kastljóssins á föstudögum.
Í haust hófu göngu sína nýir
viðtalsþættir Þórhalls sem kallast
Návígi en þar með er ekki allt upp-
talið. Þórhalli hefur nú verið falið
að stýra ráði sem móta á framtíðar-
stefnu Rásar 2 en
við þá vinnu nýtur
hann meðal annars
ráðgjafar Ólafs Páls
Gunnarssonar og
Margrétar Marteins-
dóttur. Bíða margir
nú spenntir eftir því
að sjá hvaða verkefni
bíða Þórhalls
næst í Efsta-
leitinu því
hann sýnir
lítið farar-
snið á sér.
Skyldi hann láta sjá sig?
Meðal þingmanna á Norðurlanda-
ráðsþingi er Jenis av Rana, fær-
eyski þingmaðurinn sem neitaði að
sitja til borðs með hjónakornunum
Jóhönnu Sigurðardóttur og Jónínu
Leósdóttur í kvöldverði þegar þær
komu til Færeyja í haust, vegna
kynhneigðar þeirra. Í kvöld býður
íslenska ríkisstjórnin þátttakendum
þingsins til kvöldverðar í Listasafni
Íslands. Skyldi Jenis láta sjá sig
þar? Fari svo að Jenis mæti, þá er
spurning hvað aðrir þinggestir gera,
og þá sérstaklega danski þingmað-
urinn Mogens Jensen. Hann hefur
nefnilega skorað opinberlega á alla
fulltrúa Norðurlandaráðs að
sniðganga Jenis af Rana
og setjast ekki til borðs
með honum í kvöld-
verði, nema hann hafi
fyrst beðið Jóhönnu
afsökunar á
framferði sínu
í Færeyjum.
- hdm, gb
1 Auður: Hátterni Jóns Gnarr í
ætt við einelti
2 Íranska konan hengd í dag
3 Mike Tyson millilenti á Íslandi
4 Gos gæti verið hafið
5 Lenti í slysi og missti vinnuna
í kjölfarið