Kylfingur - 01.08.1937, Side 7

Kylfingur - 01.08.1937, Side 7
KYLFINGUR 17 vitandi leika að nokkurri holu, sem hann nær til á kapp- leikavellinum. Víti: Útilokun frá keppni. 5. HÖGGLEIKAREGLA. Hvernig skrá skal höggaf jölda. 1) Höggafjöldi hverrar holu skal skráður af teljara eða af hverjum keppanda, sem starfar þá sem teljari fyrir keppi- naut sinn. Ef fleiri en einn hafa skráð, skal hver teljari und- irrita sinn hluta af skráningunni. Höggafjöldann ber að kalla upphátt eftir hverja holu. Þegar fyrirskipuðum hringafjölda er lokið, skal teljarinn undirrita kortið og keppanda ber að sjá um, að það sé afhent kappleikanefnd eins fljótt og með sanngirni telst hægt. Víti: Útilokun frá keppni. Golfkort ber að afhenda keppendum með dagsetningu og nafni keppanda árituðu. Skráning og samlagning höggafjölda. 2) Enga breytingu má gera á golfkorti eftir að það hefir verið afhent nefndinni. Ef það sannast, að keppandi hafi af- hent kort með lægri höggafjölda en hann raunverulega lék, skal hann útilokaður úr keppninni. Nefndin ber ábyrgð á samlagningu höggafjöldans á kortinu. Nefndin úrskurðar vafasöm víti. 3) Ef keppandi er í vafa, eftir að hann hefir leikið fyrir- skipaða hringi á vellinum, um það, hvort honum beri að taka víti á einhverri holu, getur hann afhent kort sitt ásamt skýrslu, munnlegri eða skriflegri, eftir ákvörðun nefndar- innar, um vafaatburðinn. Nefndin ákveður svo hvaða víti, ef nokkuð, keppandanum ber að taka.

x

Kylfingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.