Kylfingur - 01.08.1937, Qupperneq 7
KYLFINGUR
17
vitandi leika að nokkurri holu, sem hann nær til á kapp-
leikavellinum.
Víti: Útilokun frá keppni.
5. HÖGGLEIKAREGLA.
Hvernig skrá skal höggaf jölda.
1) Höggafjöldi hverrar holu skal skráður af teljara eða
af hverjum keppanda, sem starfar þá sem teljari fyrir keppi-
naut sinn. Ef fleiri en einn hafa skráð, skal hver teljari und-
irrita sinn hluta af skráningunni. Höggafjöldann ber að kalla
upphátt eftir hverja holu. Þegar fyrirskipuðum hringafjölda
er lokið, skal teljarinn undirrita kortið og keppanda ber að
sjá um, að það sé afhent kappleikanefnd eins fljótt og með
sanngirni telst hægt.
Víti: Útilokun frá keppni.
Golfkort ber að afhenda keppendum með dagsetningu og
nafni keppanda árituðu.
Skráning og samlagning höggafjölda.
2) Enga breytingu má gera á golfkorti eftir að það hefir
verið afhent nefndinni. Ef það sannast, að keppandi hafi af-
hent kort með lægri höggafjölda en hann raunverulega lék,
skal hann útilokaður úr keppninni. Nefndin ber ábyrgð á
samlagningu höggafjöldans á kortinu.
Nefndin úrskurðar vafasöm víti.
3) Ef keppandi er í vafa, eftir að hann hefir leikið fyrir-
skipaða hringi á vellinum, um það, hvort honum beri að
taka víti á einhverri holu, getur hann afhent kort sitt ásamt
skýrslu, munnlegri eða skriflegri, eftir ákvörðun nefndar-
innar, um vafaatburðinn. Nefndin ákveður svo hvaða víti,
ef nokkuð, keppandanum ber að taka.