Kylfingur - 01.08.1937, Blaðsíða 16
22
KYLFINGUR
Reglur fyrir fjórleik i höggleikakeppni.
Hinar sérstöku reglur um höggleikakeppni skulu gilda
fyrir fjórleik í höggleikakeppni, og þar sem efni og orðalag
leyfir, skal orðið „keppandi" þýða einnig meðleikandann.
Reglur um »Bogey« keppni.
„Bogey“ keppni er einskonar höggleikur, þar sem leikið
er móti ákveðnum höggafjölda á hverri holu í hinum fyrir-
skipaða hring eða hringum.
Það er reiknað eins og í holukeppni, og sá vinnur, sem
flestar holur heíir í vinning. Við kappleikinn gilda reglur
fyrir höggleikakeppni með eftirfarandi undantekningum:
1) Sérhver hola, sem keppandi gefur ekki upp högga-
fjölda á, telst töpuð. Sá er telur, ber aðeins ábyrgð á skrán-
ingu rétts höggafjölda á þeim holum, sem keppandinn hefir
annaðhvort færri eða jaínmörg högg á miðað við „par“ eða
„bogey“ holunnar, að meðreiknaðri forgjöf.
2) Ef reglur eru brotnar og keppandi er dæmdur úr leik
fyrir brotið, skal hann útilokaður frá leik á þeirri holu að-
eins, sem regla var brotin á. En enginn keppandi er undan-
þeginn hinni almennu útilokun frá keppni, sem lögð er á
með höggleikareglu 2 (1), 4 (2) og 5 (1) og (2), þó svo,
að höggleikaregla 5 (2) gildi ekki, ef villan í skráningu
höggafjöldans á golfkortið hefir ekki áhrif á úrslit holunn-
ar, sem rangt er skráð á.
Ath. Þær holur, sem forgjöf er á, ætti að merkja á kortinu.
Reglur um þríboltaleik, fjórboltaleik og valkeppni.
Almennt.
1) Sérhver keppandi getur látið lyfta eða slá hvaða bolta
sem er, eftir vali eiganda boltans, ef hann telur að boltinn
muni trufla eða aðstoða keppanda eða leiklið; en þetta verður
að gera áður en keppandinn slær sinn bolta.