Kylfingur - 01.08.1937, Blaðsíða 17
KYLFINGUR
23
2) Ef bolti keppanda hreyfir annan bolta í keppninni,
verður að leggja hinn hreyfða bolta eins nærri þeim stað,
sem hann var á, og unnt er, án víta.
3) Á brautum er ekki víti fyrir það, að keppandi leikur
þegar keppinautur átti að gera það, og boltann má ekki
afturkalla.
Á flöt getur keppinautur afturkallað höggið, en vítalaust
skal það vera.
Þríboltaleikur.
4) Ef enginn á rétt á leik á teig í þríboltaleik, umfram
keppinauta sína, skal leikið í sömu röð og á næsta teig á
undan.
5) Ef bolti keppanda í þríboltaleik hittir keppinaut, kylfu-
svein hans eða kylfur, eða ef eitthvað af þessu hreyfir bolt-
ann, skal sá keppinautur hafa tapað holunni gagnvart kepp-
andanum. Hvað hinn keppinautinn snertir, skoðast atvikið
sem aukahindrun.
Fjórboltaleikur og valkeppni.
6) Boltum, sem tilheyra sama leikliði, skal leikið í þeirri
röð, sem það lið telur heppilegast.
7) Ef bolti keppanda hittir keppinaut, kylfusvein hans eða
kylfur, eða ef eitthvað af þessu hreyfir boltann, skal leiklið
keppinautsins tapa holunni.
8) Ef bolti keppanda eða félaga hans (í sama leikliði)
hittir sjálfan hann, félaga hans, kylfusveina þeirra eða ky'lf-
ur, eða ef eitthvað af þessu stöðvar boltann, skal sá keppandi
dæmdur úr leik á þeirri holu.
9) Ef keppandi slær bolta félaga síns, og villan uppgötvast
og er tilkynnt mótliðinu áður en keppinautur hefir slegið ann-
að högg, skal sá keppandi dæmdur úr leik á þeirri holu, og
félagi hans skal láta bolta detta eins nálægt og unnt er þeim
stað, sem boltinn var sleginn af, án víta. Ef villan uppgötv-
ast ekki fyrr en keppinautur hefir slegið næsta högg, skal
leiklið keppandans tapa holunni.
10) Annars gildir það, að þar sem golfreglur ákveða, að
holan sé töpuð, þá skal sá keppandi, er braut regluna, dæmd-