Fréttablaðið - 08.11.2010, Síða 4
4 8. nóvember 2010 MÁNUDAGUR
SVÍÞJÓÐ Sænska lögreglan handtók
á laugardag 38 ára gamlan mann,
sem talinn er vera byssumaðurinn
sem skotið hefur á innflytjendur í
Malmö undanfarið ár.
„Ástæðan fyrir því að við feng-
um áhuga á þessum manni voru
ábendingar frá almenningi,“ segir
Börje Sjöholm, talsmaður lögregl-
unnar í Malmö.
Í sænskum fjölmiðlum er haft
eftir vitnum að tíu lögreglumenn
hafi á laugardagskvöld ráðist inn
í íbúð í Malmö þar sem maðurinn
var staddur. Strax á eftir var leitað
í íbúðinni og hald lagt á ýmsa muni
sem bornir voru út í kössum.
Nágrannar segja manninn vera
einrænan. Hann hafi mikinn
áhuga á skotvopnum og reiðhjól-
um, en talið er að byssumaðurinn
hafi notað reiðhjól til að forða sér
af vettvangi. Hann er einnig sagð-
ur eiga skammbyssu með leysi-
geislamiði.
Hann er sænskur að uppruna og
hefur ekki hlotið dóm.
Maðurinn er handtekinn vegna
gruns um eitt morð og sjö morð-
tilraunir, en alls hafa hátt á annan
tug skotárása í borginni undanfar-
ið ár verið óupplýstur. Lögreglan
hefur ekki viljað segja hverjar
þeirra þessi maður er grunaður
um.
Fyrsta árásin var gerð í október
á síðasta ári, þegar skotið var á tví-
tuga konu og 21 árs gamlan mann
sem sátu í bifreið á bílastæði.
Konan lést, en maðurinn lifði af.
Lögreglan segir að byssan,
sem notuð var í þeirri árás, sé sú
sama og notuð hefur verið í fleiri
árásum.
Árásirnar hafa flestar beinst að
innflytjendum. Oftast hafa þeir
verið einir á ferð að kvöldlagi
þegar skotið hefur verið á þá.
Árásirnar hafa skotið íbúum
borgarinnar skelk í bringu, eink-
um þó innflytjendum. Margir hafa
varla þorað að fara út úr húsi, eink-
anlega á kvöldin og á morgnana en
margir eru einnig hræddir við að
vera á ferli um hábjartan dag.
Fjörutíu prósent íbúanna í
Malmö eru innflytjendur eða börn
innflytjenda. Margir Svíar líta
þennan hóp tortryggnum augum
og kenna innflytjendum um fjölg-
un glæpa undanfarin misseri.
Í þingkosningunum 19. sept-
ember komst nýr flokkur hægri
þjóðernissinna, Svíþjóðardemó-
kratarnir, inn á þing í fyrsta sinn.
gudsteinn@frettabladid.is
Ástæðan fyrir því að
við fengum áhuga á
þessum manni voru ábend-
ingar frá almenningi.“
BÖRJE SJÖHOLM
TALSMAÐUR LÖGREGLUNNAR Í MALMÖ.
HEILBRIGÐISMÁL Starfsánægja
og starfsandi á Landspítalanum
mælist heldur meiri og betri en
árið 2006. Þá hefur streita aukist
en að sama skapi telur starfsfólk
spítalans að vinnuálag hafi nær
haldist óbreytt. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í pistli
Björns Zoëga, forstjóra Landspít-
alans, á heimasíðu spítalans. Þar
fjallar Björn um fyrstu niðurstöð-
ur í nýafstaðinni könnun á starfs-
umhverfi. Björn segir þátttöku
starfsmanna í könnuninni afar
góða eða tæplega 60 prósent. Þetta
sé mun betri þátttaka en í fyrri
könnunum. - mmg
Ný könnun hjá LSH:
Starfsánægja
heldur meiri
REYKJAVÍK Jón Gnarr borgarstjóri
segir að enn sé unnið að því að
fá ísbjörn í Fjölskyldu- og húsa-
dýragarðinn og að tíðinda sé að
vænta.
Kosninga-
loforð Besta
flokksins
um ísbjörn í
garðinn vakti
mikla athygli
í aðdraganda
borgarstjórn-
arkosninganna
í vor. Margir
hafa gagnrýnt
loforðið og sagt að kostnaðurinn
sem myndi fylgja því að koma
upp aðstöðu fyrir ísbjörn í garð-
inum yrði einfaldlega of mikill.
Í byrjun júní tók Jón ekki
afstöðu til þess hvort skynsam-
legra væri að koma fleiri börn-
um inn á leikskóla í borginni eða
koma upp aðstöðu fyrir ísbjörn í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Hann sagðist bæði vilja ísbjörn
og fleiri leikskólapláss. - mmg
Borgarstjóri gefst ekki upp:
Stefnir enn á
að fá ísbjörninn
JÓN GNARR
MENNTAMÁL Fyrsta doktorsvörnin
við Landbúnaðarháskóla Íslands
fer fram næstkomandi fimmtu-
dag þegar Elsa Albertsdóttir
ver ritgerð sína á sviði erfða- og
kynbótafræði.
Skólinn hlaut formlega viður-
kenningu menntamálaráðherra á
doktorsnámi fyrir tveimur árum
og þykir doktorsvörnin marka
upphaf á nýju tímabili í sögu
skólans og rannsókna á fræða-
sviðum stofnunarinnar, að því er
segir í fréttatilkynningu.
Ritgerðin nefnist Samþætt
kynbótamat kynbóta-, keppnis-
og mætingareiginleika íslenskra
hrossa og fer athöfnin fram á
ensku.
Í tengslum við vörnina verð-
ur haldið opið málþing um
hrossarækt með erlendum og
innlendum fyrirlesurum. Mál-
þingið hefst 12. nóvember. -jma
Landbúnaðarháskóli Íslands:
Fyrsta doktors-
vörnin fer fram
Grunaður um skot-
árásirnar í Malmö
Ábendingar frá almenningi urðu til þess að lögreglan handtók 38 ára mann.
Hann er grunaður um sjö skotárásir undanfarið ár, þar á meðal eitt morð. Árás-
irnar hafa skotið íbúum skelk í bringu svo margir þora varla út úr húsi lengur.
SAMGÖNGUR Íslandsstofa bindur
vonir við að Ísland verði miðstöð
millilandaflugs frá Grænlandi.
Sendinefnd frá Íslandsstofu fer til
Grænlands í vikunni til að kynna
verkefnið. Mikil sóknarfæri eru
fyrir íslensk fyrirtæki ef sam-
komulag næst um að gera Ísland
að miðstöð millilandaflugs milli
Grænlands og annarra ríkja, að
mati Íslandsstofu. Hingað til hafa
Grænlendingar og þeir sem hafa
viljað sækja Grænland heim flogið
í gegnum Kastrup-flugvöll í Kaup-
mannahöfn.
Flug frá Íslandi til Grænlands:
Verði miðstöð
millilandaflugs
BJÖRGUN Björgunarsveitin Stefán
í Mývatnssveit var kölluð út um
fimmleytið í gær þegar beiðni
barst um aðstoð vegna manns
sem fallið hafði í sprungu við
gíginn Lúdent sem er austan við
Mývatn.
Maðurinn, sem var á rjúpna-
veiðum ásamt félaga sínum, var
ómeiddur en samkvæmt fyrstu
boðum komst hann ekki upp
úr sprungunni. Svæðið er afar
sprungið og snjór yfir öllu þannig
að erfitt getur verið að vara sig á
sprungum. Þegar björgunarsveit-
in kom að hafði maðurinn náð
að komast upp úr sprungunni en
varð að skilja byssuna eftir. Fékk
hann aðstoð við að ná henni.
Björgunarsveit kölluð út:
Rjúpnaskytta
féll í sprunguFRÁ BLAÐAMANNAFUNDI LÖGREGLUNNAR Í MALMÖ Í GÆR Ulf Sempert, lögreglu-
stjóri í Malmö, Solveig Vollstad yfirsaksóknari og Börje Sjöholm frá sakamáladeild
lögreglunnar. NORDICPHOTOS/AFP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
13°
5°
6°
6°
3°
6°
6°
22°
7°
18°
8°
22°
1°
6°
15°
3°Á MORGUN
Hæg breytileg átt um
mest allt land.
MIÐVIKUDAGUR
Vaxandi vindur þegar
líður á daginn.
-1
1
1 2
-2
-1
1
-1
0
0
2
3
3
2
2
2
3
5
3
5
-3
10
11
11
10
6
10
7
12
9
186
5
8
15
SLABB
Það eru norð-
austlægar áttir í
kortunum næstu
daga með úrkomu
sem fellur ýmist
sem rigning, slydda
eða snjókoma því
hitastigið verður
að færast upp og
niður fyrir frost-
mark. Það má því
búast við slabbi að
minnsta kosti suma
daga í vikunni.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
INDLAND, AP Barack Obama Banda-
ríkjaforseti segist þurfa að leið-
rétta stefnu sína heima fyrir
vegna kosningaúrslita, þar sem
andstæðingar hans náðu meiri-
hluta í fulltrúadeild þingsins.
Hann tók þó ekki fram hvernig
hann ætli að leiðrétta stefnuna.
Þetta sagði hann á Indlandi,
þar sem hann hóf tíu daga Asíu-
ferð sína á laugardag.
Þar hitti hann í gær Manmo-
han Singh forsætisráðherra, sem
tók á móti honum á flugvellinum
í Nýju-Delí.
Fyrr um daginn, þegar Obama
var í Mumbaí, ræddi hann við
háskólanema, sem sögðust
óánægðir með að hann skuli ekki
líta á Pakistan sem hryðjuverka-
ríki.
Mikill fjandskapur hefur lengi
ríkt milli Indlands og Pakistan,
og hafa Indverjar meðal annars
sakað pakistönsk stjórnvöld um
að styðja við hryðjuverkamenn
sem hafa gert árásir á Indlandi.
Obama sagðist vonast til þess
að smám saman takist að byggja
upp gagnkvæmt traust milli ríkj-
anna. „Það mun ekki gerast á
morgun,“ bætti hann þó við. - gb
Barack Obama hóf tíu daga Asíuferð sína á Indlandi:
Segist munu leiðrétta stefnuna
OBAMA OG SINGH Forsetar Bandaríkj-
anna og Indlands hittust í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 05.11.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,2034
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
109,29 109,81
176,72 177,58
154,33 155,19
20,701 20,823
18,956 19,068
16,561 16,659
1,3523 1,3603
173,12 174,16
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Fjölbreytt og gott
veganesti fyrir lífið
Kjarngóð næring
Ósaltað
Ósykrað
Engin aukaefni
www.barnamatur.is
Lífrænn
barnamatu
r