Fréttablaðið - 08.11.2010, Síða 6
6 8. nóvember 2010 MÁNUDAGUR
Farðu inn á www.oddi.is
og búðu til persónulega gjöf.
Spil og jóladagatöl með þínum myndum.
Hannaðu þín
eigin spil eða
jóladagatal
á oddi.is
®
Frummælendur
Valgerður Bjarnadóttir, alþingismaður
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður
Hádegisfundur Evrópuvaktar Samfylkingarinnar
á Kaffi Sólon þriðjudaginn 9. nóvember kl. 12–13
www.xs.isAllir velkomnir
ÞJÓÐFUNDUR Jafnrétti, lýðræði,
mannréttindi, heiðarleiki og rétt-
læti eru á meðal þeirra helstu
gilda sem fundargestir vilja að
lögð verði til grundvallar í nýrri
stjórnarskrá. Helstu niðurstöð-
ur Þjóðfundar um stjórnarskrá
sem haldinn var á laugardag voru
kynntar á blaðamannafundi í gær.
Fundargestir voru um 950 talsins
af landinu öllu.
Á fundinum voru gildin flokk-
uð í átta meginflokka sem inni-
hald stjórnarskrárinnar var rætt
út frá. Fundargestir lögðu áherslu
á að stjórnarskráin væri sáttmáli
sem tryggja ætti fullveldi og
sjálfstæði Íslendinga og hún væri
skrifuð fyrir fólkið í landinu.
Þátttakendur greiddu atkvæði
um þá þætti sem þeim fannst
mestu skipta og hins vegar um
þá þætti sem þeim fannst fela
í sér nýjungar. Samin var setn-
ing á hverju borði um það sem
mestu hafði skipt í umræðunni.
Þá gafst fundargestum tækifæri
til að koma persónulegum tilmæl-
um á framfæri við stjórnlagaþing,
Alþingi, fjölmiðla og aðra. Helstu
ábendingarnar snerust um að
stjórnlagaþing ætti að virða nið-
urstöður Þjóðfundar, vinnubrögð
þess ættu að vera gagnsæ og að
stjórnlagaþingmenn ættu að hafa
það að leiðarljósi að stjórnarskráin
væri skiljanleg og á mannamáli.
Úrvinnsla hófst þegar að fundi
loknum og niðurstöður liggja að
mestu fyrir. Einungis átti eftir að
klára að vinna úr persónulegum
tilmælum fundargesta. Niðurstöð-
urnar munu liggja fyrir seinna í
vikunni.
Guðrún Pétursdóttir, formaður
stjórnlaganefndar, sagði þjóðfund-
inn vel heppnaðan og að góður
andi hefði myndast meðal fund-
argesta. Hún benti á að fundur-
inn væri gleðiefni fyrir þjóðina í
heild.
Njörður P. Njarðvík, meðlimur
í stjórnlaganefnd, sagði að niður-
stöður þjóðfundarins gætu orðið
grundvöllur fyrir nýjan þjóðar-
sáttmála. „Það komu fram afskap-
lega skýrar ábendingar um mann-
réttindi, réttlæti og jöfnuð,“ segir
Njörður.
Meðlimir í stjórnlaganefnd voru
sammála um það að þjóðfundur-
inn hefði verið vel heppnaður og
gæti orðið fastur liður í umræðu
um mikilvæg málefni í framtíð-
inni. Fram kom að erlendir fjöl-
miðlar og fræðimenn hefðu komið
til landsins til að fylgjast með
framkvæmd fundarins.
martaf@frettabladid.is
Sáttmáli skrifaður
fyrir Íslendinga
Jafnrétti, lýðræði og mannréttindi eru meðal helstu gilda sem þátttakendur
Þjóðfundarins leggja áherslu á að höfð verði að leiðarljósi í nýrri stjórnarskrá.
Njörður P. Njarðvík segir ábendingar um inntak stjórnarskrár í niðurstöðum.
GÓÐUR ANDI Fundargestir lögðu áherslu á að stjórnarskráin væri sáttmáli sem tryggja ætti fullveldi og sjálfstæði Íslendinga og
hún væri skrifuð fyrir fólkið í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
■ Stjórnarskráin á að standa vörð um íslenska tungu, menningu og auðlind-
ir þjóðarinnar.
■ Stjórnarskráin skal byggja á siðferðisgildum. Siðgæðisþema nýrrar
stjórnarskrár skal vera mannvirðing, tjáningarfrelsi og tillitssemi. Lögð er
áhersla á heiðarleika kjörinna fulltrúa, embættismanna, lög og siðareglur.
■ Allir skulu njóta mannréttinda samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasátt-
málum sem Ísland hefur lofað að virða, svo sem tjáningarfrelsis, friðhelgi
einkalífs, trúfrelsi og eignarréttar.
■ Tryggja skal öllum landsmönnum mannsæmandi lífskjör óháð kyni,
kynþætti, aldri, búsetu, vinnu, þjóðerni, trúarskoðun, efnahag, fötlun,
kynhneigð eða skoðunum. Lífeyrisréttindi skulu öllum tryggð.
■ Náttúra og auðlindir landsins eru óframseljanleg þjóðareign sem ber að
vernda, umgangast og nýta á sjálfbæran hátt þannig að aðgengi almenn-
ings sé tryggt.
■ Lýðræðið byggi á þrískiptingu ríkisvalds og skýrum lögum um þjóðar-
atkvæðagreiðslu um mikilvæg málefni.
■ Takmarka ætti þann tíma sem alþingismenn mega sitja á þingi.
■ Ísland sé málsvari friðar og taki þátt í alþjóðasamstarfi í þeim tilgangi.
Hægt er að nálgast niðurstöður Þjóðfundarins á slóðinni www.thjodfundur2010.is
Dæmi úr samantekt Þjóðfundarins
Hefur þú stutt við góðgerða-
samtök á árinu?
Já 83,8%
Nei 16,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Telur þú að þjóðfundurinn skili
góðum árangri?
Segðu þína skoðun á visir.is
ÞJÓÐFUNDUR „Áhugavert er að sömu gildi eru
fundarmönnum efst í huga á tveimur þjóð-
fundum,“ segir Gunnar Hersveinn, rithöf-
undur og heimspekingur, sem greint hefur
niðurstöður þjóðfundanna tveggja. „Ef til
vill má kalla þau hin íslensku þjóðgildi sem
ríkja um þessar mundir.“
Gunnar nefnir að á báðum þjóðfundunum
hafi grunngildin verið meðal annarra jafn-
rétti, lýðræði, réttlæti, virðing, heiðarleiki,
frelsi, mannréttindi og ábyrgð.
„Ég bjóst við að það yrði meiri munur því
núna var spurt um grunngildi stjórnarskrár-
innar,“ segir Gunnar og bætir við að niður-
stöðurnar staðfesti gildin í þjóðarvitundinni.
Hann segir að það hafi þó komið á óvart
að fjölskyldan var hátt skrifuð á þjóðfund-
inum 2009 en ekki nú. „Það er í raun mjög
umhugsunarvert að hornsteinn samfélags-
ins greinist svo illa. Nærtækasta skýring-
in er að þegar spurt er um þau gildi sem
eigi að vera að leiðarljós við gerð nýrrar
stjórnarskrár þá leiti hugurinn út á við í
átt til hins opinbera en ekki inn í einkalíf
fjölskyldunnar.“
Gunnar segir þjóðfundinn mikilvægan
því hann komi umræðu um grunngildi
samfélagsins aftur í gang. „Það er ótrúlega
gaman að sjá fólk hugsa um grunngildi sam-
félagsins hér og þar.“ - mmf
Sömu grunngildi voru fundarmönnum efst í huga á þjóðfundinum á laugardag og þjóðfundinum fyrir ári:
Íslensku þjóðgildin eru jafnrétti og frelsi
GUNNAR HERSVEINN „Gaman að sjá fólk hugsa um
grunngildi samfélagsins.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KJÖRKASSINN