Fréttablaðið - 08.11.2010, Page 18
8. NÓVEMBER 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Jólin eru gjarnan notuð sem
viðmið þegar klára á einhver
verk á heimilinu. Þá er gott að
geta gripið í verkfæri við hæfi
svo allt náist á tilsettum tíma.
Þessi tími ársins er tími til fram-
kvæmda. Þegar aðventan gengur í
garð vilja flestir að heimilið skarti
sínu fegursta og drífa sig því í að
hengja upp myndir á vegg, slá
saman borðstofuborði eða leggja
nýtt gólfefni. Hvert sem verkið er,
stórt eða lítið, er þó nauðsynlegt
að eiga góð verkfæri. Fréttablaðið
tók saman nokkur þeirra verkfæra
sem gott væri að eiga í handraðan-
um þegar verkgleðin tekur völd.
- rat
Þegar verk þarf að vinna
Byko: Tré-
sög 1.290
krónur.
Byko:
BOSCH
raf-
hlöðu-
borvél
Húsasmiðj-
an: Juðari
powerplus 1.690
krónur.
Húsasmiðjan:
Vinnuvesti
svart 6.990
krónur.
Verkfæralagerinn: Skrúfbitasett 695
krónur.
Verkfæralagerinn:
POW204 Slípirokkur 500W
2.995 krónur.
Verkfæralagerinn:
Skiptilyklar frá 325
krónum.
● NOKKRAR HUGMYNDIR UM BETRI NÝTINGU Á
GEYMSLUPLÁSSI
● Notum innanverðar skápahurðir
til að hengja upp áhöld og fleira.
Festingar og krókar fást í bygg-
ingavöruverslunum.
● Notum staflanlega kassa í
geymsluna með innihaldslýsingu,
það skiptir sköpum þegar verið er
að leita að einhverju.
● Sumir skápar nýtast illa því það
er of langt á milli hilln-
anna. Það er hægt að
kaupa hilluefni í bygg-
ingavöruverslunum og
setja aukahillur í skápa.
● Litlar tréskúffur fást
víða og er hægt að skrúfa
þær upp undir borð-
plötur.
leidbeiningastod.is
Haustið skartaði sínu fegursta að þessu sinni og vaxtarskilyrði gróðurs
voru með allra besta móti nýliðið sumar. Berin á trjánum voru stór og
mikil þannig að líklegt er að meiri fjöldi fræja komist af og verði að
duglegri plöntu.
Það er skemmtilegt að prófa fjölgun trjáa eða runna með berjum
og þá er nærtækast að ná sér í reyniber. Berin þurfa á kuldaskeiði að
halda þar sem kuldinn og rakur jarðvegur hjálpa til við eftirþroska.
Því dugar ekki að tína þau og þurrka og sá
svo næsta vor heldur eru þau látin vera úti í
bakka undir gleri eða plasti yfir veturinn. Sán-
ingin fer því fram að hausti eða í byrjun vetrar
og fræin spíra svo að vori.
Við fjölgunina er best er að vera með rækt-
unarbakka. Setjið þunnt lag af mold (1,5 cm)
neðst í bakkann og fínskorinn vikur þar ofan á
í aðeins þykkara lagi. Samanlagt ætti þetta að
vera u.þ.b. 4 cm af ræktunarefni. Moldin held-
ur næringu sem ræturnar þurfa á að halda en vikurinn heldur yfirborð-
inu hæfilega þurru sem kemur i veg fyrir úldnun berjanna.
Berin eru kramin í sundur og þrýst létt niður í vikurinn. Ágætt er að
fjarlægja eitthvað af berjakjötinu þar sem það úldnar frekar ef það er í
miklu magni. Ekki þarf að hafa miklar áhyggjur af þéttleika í bakkanum
þar sem plönturnar eru færðar yfir í litla potta þegar þær eru komnar
á legg.
Best er að leggja rúðugler eða harðplast yfir bakkann. Ef sett er glært
plast yfir er hætta á að það leggist alveg niður í bakkann. Örlítið þarf að
lofta um bakkann og því er glerið yfirleitt örlítið skásett á þannig að lofti
um horn. Komið bakkanum fyrir á góðum stað til dæmis í beði og látið
veturinn líða.
Að vori spíra fræin og taka má glerið af þegar stálpaðar plöntur hafa
myndast og hætta af frosti er liðin hjá.
Fleira gagnlegt á heimasíðunni: www.horticum.is
GARÐYRKJA & UMHVERFIÐ
BALDUR GUNNLAUGSSON
SKRÚÐGARÐYRKJUMEISTARI.
Berin eru kramin í sundur og
þrýst létt niður í vikurinn.
Tími berjanna
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 3.990 m2
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Margir taka til
hendinni á þess-
um tíma árs.
NORDICPHOTOS/GETTY