Fréttablaðið - 08.11.2010, Blaðsíða 40
8. nóvember 2010 MÁNUDAGUR20
sport@frettabladid.is
FÆREYSKUM LEIKMÖNNUM fer sífellt fjölgandi sem ganga til liðs við Val. Í gær var tilkynnt að félagið
hefði gert tveggja ára samning við landsliðsbakvörðinn Jónas Þór Næs, sem reyndar er hálfur Íslendingur. Fyrir
voru Valsmenn búnir að fá einn Færeying og eru með þann þriðja til reynslu. Kristján Guðmundsson, þjálfari
Vals, þekkir vel til í Færeyjum þar sem hann þjálfaði HB í Þórshöfn í sumar.
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
21
65
1
1/
10
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
1
6
2
6
0
9
/1
0
Þjónustan er veitt virka daga frá kl. 8 til 17.
Veitum ýmsa sérhæfða þjónustu, m.a. ráðgjöf
við val og notkun á vörum fyrir sykursjúka.
Láttu okkur mæla blóðsykurinn.
Hjúkrunarþjónusta
í Lyfju Lágmúla
FÓTBOLTI Það verður Íslendinga-
slagur í umspilinu í norsku
úrvalsdeildinni síðar í mánuðin-
um. Gunnar Heiðar Þorvaldsson
og félagar í Fredrikstad urðu í
þriðja sæti norsku B-deildarinn-
ar en lokaumferð deildarinnar
fór fram í gær.
Þeir mæta því Hönefoss, liði
Kristjáns Arnar Sigurðssonar,
sem urðu í þriðja neðsta sæti
úrvalsdeildarinnar. Gunnar
Heiðar kom þó ekki við sögu
þegar Fredrikstad gerði 2-2 jafn-
tefli við Bryne á útivelli í gær.
Hönefoss er nýliði í norsku
úrvalsdeildinni en Kristján Örn
kom til liðsins fyrir tímabilið frá
Brann. Kristján Örn og félagar
þurfa því að berjast fyrir sæti
sínu í deildinni í tveimur leikjum
gegn Fredrikstad, sem féll úr
úrvalsdeildinni í fyrra, einmitt
eftir umspil.
Sogndal og Sarpsborg 08
tryggðu sér sæti í úrvalsdeildinni
í gær og taka þar sæti Kongsvin-
ger og Sandefjord. - esá
Norski fótboltinn:
Íslendingaslag-
ur í umspilinu
BARDAGAÍÞRÓTTIR Íslandsmótið í
brasilísku Jiu-Jitsu fór fram um
helgina en um 80 keppendur voru
skráðir til leiks. Gunnar Nelson
og Auður Olga Skúladóttir unnu
bæði tvöfalt – í sínum þyngdar-
flokki sem og í opnum flokki.
Gunnar Nelson þykir einn
efnilegasti bardagakappi heims
í blönduðum bardagalistum
(MMA) en fékk óvænta mót-
spyrnu um helgina þegar hann
mætti hinum sautján ára Sighvati
Helgasyni. Gunnar hafði þó betur
í framlengingu og lagði svo Þráin
Kolbeinsson í úrslitarimmunni í
opnum flokki. Sighvatur er Norð-
urlandameistari í sínum aldurs-
flokki.
Alls eru iðkendur í íþróttinni
um 400 talsins en flestir verð-
launahafar helgarinnar komu úr
Mjölni. - esá
Gunnar Nelson í Jiu-Jitsu:
Fékk óvænta
mótspyrnu
GUNNAR NELSON Vann tvöfalt á Íslands-
mótinu um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Enska úrvalsdeildin
Birmingham - West Ham 2-2
0-1 Frederic Piquionne (47.), 0-2 Valon Behrami
(57.), 1-2 Cameron Jerome (63.), 2-2 Liam
Ridgewell (72.).
Blackburn - Wigan 2-1
1-0 Morten Gamst Pedersen (57.), 2-0 Jason
Roberts (67.), 2-1 Charles N’Zogbia (73.).
Blackpool - Everton 2-2
1-0 Neal Eardley (9.), 1-1 Tim Cahill (12.), 2-1
David Vaughan (47.), 2-2 Seamus Coleman (49.).
Bolton - Tottenham 4-2
1-0 Kevin Davies (30.), 2-0 Grétar Rafn Steinsson
(55.), 3-0 Kevin Davies (75.), 3-1 Alan Hutton
(78.), 3-2 Roman Pavlyuchenko (86.), 4-2 Martin
Petrov (93.).
Fulham - Aston Villa 1-1
0-1 Marc Albrighton (40.), 1-1 Brede Hangeland
(94.).
Manchester United - Wolves 2-1
1-0 Park Ji-Sung (44.), 1-1 Sylvan Ebanks-Blake
(65.), 2-1 Park Ji-Sung (92.).
Sunderland - Stoke 2-0
1-0 Asamoah Gyan (8.), 2-0 Asamoah Gyan (85.)
Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmanna-
hópi Stoke.
Arsenal - Newcastle 0-1
0-1 Andy Carroll (45.).
West Brom - Manchester City 0-2
0-1 Mario Balotelli (20.), 0-2 Mario Balotelli (26.)
Liverpool - Chelsea 2-0
1-0 Fernando Torres (11.), 2-0 Fernando Torres
(44.).
STAÐAN
Chelsea 11 8 1 2 27-5 25
Man. United 11 6 5 0 24-13 23
Arsenal 11 6 2 3 22-11 20
Man. City 11 6 2 3 15-10 20
Newcastle 11 5 2 4 20-14 17
Bolton 11 3 6 2 17-16 15
Tottenham 11 4 3 4 13-14 15
Sunderland 11 3 6 2 11-12 15
Liverpool 11 4 3 4 12-14 15
West Brom 11 4 3 4 14-19 15
Everton 11 3 5 3 12-10 14
Blackpool 11 4 2 5 17-23 14
Fulham 11 2 7 2 13-12 13
Aston Villa 11 3 4 4 10-14 13
Birmingham 11 2 6 3 12-14 12
Blackburn 11 3 3 5 11-13 12
Stoke City 11 3 1 7 10-16 10
Wigan Athletic 11 2 4 5 8-20 10
Wolves 11 2 3 6 11-18 9
West Ham 11 1 4 6 9-20 7
Sænska úrvalsdeildin
Djurgården - Halmstad 0-2
Jónas Guðni Sævarsson var ekki í liði Halmstad.
Elfsborg - GAIS 0-1
Hallgrímur Jónasson lék allan leikinn fyrir GAIS og
Eyjólfur Héðinsson kom inn á sem varamaður.
IFK Gautaborg - Gefle 2-2
Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson léku allan
leikinn fyrir IFK. Theodór Elmar Bjarnason var
ónotaður varamaður.
Åtvidaberg - AIK 1-1
Helgi Valur Daníelsson lék allan leikinn fyrir AIK.
Norska úrvalsdeildin
Strömsgodset - Lilleström 5-4
Stefán Logi Magnússon og Björn Bergmann
Sigurðarson léku allan leikinn fyrir Lilleström.
Brann - Odd Grenland 1-1
Gylfi Einarsson var á bekknum hjá Brann en Birkir
Már Sævarsson var ekki í hópnum. Árni Gautur
Arason var á bekknum hjá Odd Grenland.
Molde - Stabæk 1-0
Bjarni Ólafur Eiríksson og Pálmi Rafn Pálmason
léku allan leikinn fyrir Stabæk. Veigar Páll Gunn-
arsson var ekki í leikmannahópi liðsins.
Sandefjord - Hönefoss 6-1
Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn fyrir
Hönefoss.
Viking - Kongsvinger 3-1
Birkir Bjarnason skoraði tvö mörk fyrir Viking.
Hann lék allan leikinn, eins og Indriði Sigurðsson.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Rosenborg náði söguleg-
um árangri í norsku úrvalsdeild-
inni um helgina er liðið gerði
2-2 jafntefli við Álasund í loka-
umferð deildarinnar. Jafntefl-
ið þýddi að Rosenborg fór
taplaust í gegnum tíma-
bilið en alls vann liðið
nítján leiki og gerði ell-
efu jafntefli.
Rosenborg var
fyrir löngu búið að
tryggja sér meistara-
titilinn í 22. sinn í sögu
félagsins. Þetta var
enn fremur fimmtándi
titill hins 69 ára gamla Nils Arne
Eggen (í mynd) sem tók við liðinu
aftur í maí eftir að Erik Ham-
rén tók við sænska landsliðinu.
Hann mun nú aftur hætta og
Jan Jönsson, sem þjálfað hefur
Stabæk, mun taka við.
Malmö tryggði sér
sænska meistaratitil-
inn um helgina með
öruggum 2-0 sigri
á Mjällby í lokaum-
ferðinni. Þetta var í
nítjánda sinn í sögu félagsins
sem liðið verður meistari og í
fyrsta sinn síðan 2004. - esá
Tímabilið búið í Noregi og Svíþjóð:
Sögulegt hjá Rosenborg
FÓTBOLTI Eftir ótrúlegt ár þar sem
skipt hefur verið bæði um knatt-
spyrnustjóra og eigendur hjá
Liverpool virðist loksins betri tíð
í vændum fyrir stuðningsmenn
liðsins. Liverpool vann í gær 2-0
sigur á toppliði Chelsea á heima-
velli sínum og kom sér þar með
í fyrsta sinn í langan tíma í efri
hluta deildarinnar.
Fernando Torres hefur varla
verið svipur hjá sjón í haust en
hann virðist vera aftur kominn
í sitt besta form. Hann var frá-
bær gegn Chelsea í gær og skor-
aði bæði mörk Liverpool í fyrri
hálfleik í gær.
„Við vorum ekki nægilega góðir í
upphafi tímabilsins,“ sagði Torres í
gær. „En allt frá byrjun töldum við
okkur þurfa tíma til að vinna með
nýjum stjóra og nýjum leikmönn-
um. Við höfum núna sýnt liðunum
sem eru um miðja deild, eða liðum
sem eru ekki jafn góð og Chelsea,
að við getum spilað eins vel og við
gerðum í dag.“
Hann segir mikilvægt að halda
liðinu áfram á sigurbraut en
Liverpool á næst leiki gegn Wigan
og Stoke. „Við verðum að halda
áfram að vinna. Við höfum unnið
þrjá leiki á síðustu sjö dögum en
við verðum að gleyma því núna og
halda áfram að safna stigum.“
Torres hefur þurft að glíma við
meiðsli undanfarnar vikur og mán-
uði. „Þetta hefur verið erfitt fyrir
mig en ég er að æfa og bæta mig
á hverjum degi. Ég veit ekki hve-
nær ég mun ná mínu besta fram
en það mun ég gera eins fljótt og
hægt er. Ég veit hvaða væntingar
eru gerðar til mín en ég get tekist
á við þær.“
Roy Hodgson, stjóri Liverpool,
var harðlega gagnrýndur þegar
gengi liðsins var sem verst í haust
en núna virðist allt breytt. Hann
ítrekaði mikilvægi Torres eftir
leikinn í gær.
„Hann var þreyttur í seinni
hálfleik en hélt áfram að hlaupa,
skapa sér svæði og varnarmönnum
Chelsea vandræði. Hann er okkur
afar mikilvægur og væri svo sem
öllum félögum mikilvægur leik-
maður. Það er líka erfitt að njóta
velgengni í starfi ef maður á ekki
leikmenn sem standa sig vel fyrir
mann.“
Hann vonast til þess að Torres
geti litið til baka í vor og verið
ánægður með tímabilið. „Hann vill
að félaginu gangi vel og við erum á
réttri leið. Það er bjart fram undan
með nýjum eigendum félagsins.“
Sjálfur hafði hann aldrei áhyggj-
ur af starfinu sínu. „Maður verð-
ur bara að þola ýmislegt og halda
áfrm að vinna með liðinu. Þeir
þurfa að svara fyrir gagnrýnina
inni á vellinum. Við erum ekki
slæmt lið og við erum að vinna að
því að gera það enn betra.“
Þrátt fyrir tapið er Chelsea enn
á toppi deildarinnar með 25 stig,
tveimur meira en Manchester
United sem vann góðan 2-1 sigur
á Wolves um laugardaginn. Alex
Ferguson, stjóri United, hélt upp á
24 ára starfsafmæli þá en leiksins
verður þó helst minnst fyrir stutta
innkomu Owens Hargreaves.
Hargreaves var óvænt í byrjun-
arliði United í fyrsta sinn í rúm tvö
ár en þurfti að fara af velli eftir
aðeins rúmar fimm mínútur vegna
meiðsla.
Newcastle vann óvæntan 1-0
útisigur á Arsenal á útivelli í gær
með marki vandræðagemlingsins
Andy Carroll sem var aftur í kast-
ljósi fjölmiðlanna um helgina fyrir
hegðun sína utan vallar.
Mario Balotelli var bæði hetja
og skúrkur Manchester City er
liðið vann 2-0 sigur á West Brom.
Hann skoraði bæði mörk liðsins
en var svo vikið af velli með rautt
spjald í síðari hálfleik.
City hafði tapað þremur leikjum
í röð og stjóra liðsins, Roberto
Mancini, var létt. „Við vorum frá-
bærir. Strákarnir voru frábærir
og spiluðu vel,“ sagði Mancini og
hrósaði einnig Balotelli. „Hann
spilaði mjög vel. Hann skoraði tvö
mörk og stóð sig mjög vel hvað mig
varðar.“
Mancini var þó ósáttur við rauða
spjaldið sem hann fékk. „Dóm-
arinn á ekki að geta sýnt rauða
spjaldið fyrir þetta.“
eirikur@frettabladid.is
Torres sá um meistarana
Fernando Torres er aftur kominn á fullt. Liverpool vann sinn fjórða sigur í röð
í gær og skoraði Torres bæði mörkin í 2-0 sigri á Englands- og bikarmeisturum
Chelsea. Aðeins tvö stig skilja að Chelsea og Manchester United á toppnum.
TÖFRAMAÐURINN TORRES Fernando Torres fór illa með Chelsea í gær og skoraði
bæði mörkin í 2-0 sigri Liverpool á meisturunum. NORDIC PHOTOS/GETTY