Fréttablaðið - 08.11.2010, Blaðsíða 42
22 8. nóvember 2010 MÁNUDAGUR
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0030 · www.burstagerdin.is
- Í öll anddyri
- Hvaða stærð sem er
- Afgreidd á 2 dögum
• •B
U R
S TA G E R Ð I N
ÍS
L
E N S K U R I Ð N
A Ð
U
R
Powerade-bikarkeppni karla
32-LIÐA ÚRSLIT
Hekla - Ármann 52-96
Reynir Sandgerði - Hamar 40-97
Þór, Þorlákshöfn - FSu 114-79
Laugdælir - Leiknir Reykjavík 80-73
Stjarnan B - Njarðvík B 82-87
Patrekur - Keflavík 76-99
ÍG - Skallagrímur 70-74
Stál-úlfur - Haukar 63-114
Víkingur Ólafsvík - Snæfell 45-129
Valur - ÍR 71-98
Breiðablik - Tindastóll 49-78
N1-deild karla
Haukar - Selfoss 31-25 (16-11)
N1-deild kvenna
ÍBV - HK 27-27 (13-16)
ÍR - Valur 12-48 (8-23)
FH - Fram 27-37 (12-18)
Fylkir - Grótta 32-23 (19-12)
STAÐAN
Fram 6 6 0 0 220-114 12
Valur 6 5 0 1 218-121 10
Stjarnan 5 4 0 1 164-135 8
Fylkir 6 4 0 2 176-150 8
ÍBV 5 2 1 2 138-134 5
HK 6 2 1 3 145-168 5
FH 5 2 0 3 133-132 4
Haukar 5 2 0 3 109-146 4
Grótta 6 0 0 6 136-208 0
ÍR 6 0 0 6 91-222 0
Þýska úrvalsdeildin
Lübbecke - Rheinland 33-22
Þórir Ólafsson skoraði fjögur mörk fyrir Lübbecke
og Sigurbergur Sveinsson fimm fyrir Rheinland.
Gummersbach - Füchse Berlin 32-34
Alexander Petersson skoraði sjö mörk fyrir
Füchse Berlin.
Ahlen-Hamm - Wetzlar 27-30
Kári Krisján Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir
Wetzlar.
Rhein-Neckar Löwen - Grosswallst. 31-23
Ólafur Stefánsson skoraði þrjú fyrir Löwen og
Róbert Gunnarsson eitt. Sverre Jakobsson skoraði
ekki fyrir Grosswallstadt.
Balingen - Hannover-Burgdorf 30-30
Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði sex mörk fyrir
Hannover-Burgdorf, Vignir Svavarsson fimm og
Hannes Jón Jónsson tvö.
Hamburg - Flensburg 32-24
Göppingen - Magdeburg 29-17
STAÐA EFSTU LIÐA
RN Löwen 11 9 1 1 349-303 19
Kiel 10 9 0 1 339-238 18
Hamburg 10 9 0 1 329-256 18
Füchse Berlin 10 8 1 1 272-245 17
Gummersb. 10 7 0 3 313-290 14
Flensburg 11 7 0 4 332-297 14
Magdeburg 10 6 0 4 291-278 12
Göppingen 10 5 2 3 281-268 12
Grosswallst. 11 6 0 5 300-306 12
Lemgo 10 4 2 4 281-278 10
Balingen 10 3 3 4 277-300 9
Lübbecke 10 3 1 6 280-297 7
Friesenheim 11 2 3 6 295-331 7
Danska úrvalsdeildin
Álaborg - Skjern 28-33
Ingimundur Ingimundarson skoraði ekki fyrir
Álaborg.
Bjerringbro-Silkeborg - AG 28-33
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fjögur mörk
fyrir AG en Arnór Atlason ekkert. Hann meiddist
í leiknum.
Midtjylland - Lemvig 29-29
Pétur Pálsson skoraði ekki fyrir Midtjylland, né
heldur Elvar Friðriksson fyrir Lemvig.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI „Við unnum leikinn,
þetta hefur því gengið ágætlega,“
sagði Grétar Rafn Steinsson við
Fréttablaðið eftir sigur Bolton á
Manchester City um helgina. Grét-
ar Rafn hafði gætur á Gareth Bale
í leiknum og kórónaði frábæra
frammistöðu með laglegu marki
sem kom Bolton í 2-0 forystu.
„Ég fékk engin sérstök fyrir-
mæli fyrir leikinn um hvernig ég
ætti að taka á Bale. Hann er frá-
bær leikmaður, sterkur og fljót-
ur. En ég mæti góðum leikmönn-
um í hverri einustu viku og það
þýðir ekki að hugsa of mikið um
svona lagað. Þá fer þetta í hausinn
á manni. Ég svaf vel og nærðist vel
fyrir leikinn. Það er best að hafa
það þannig,“ segir Grétar Rafn.
„Ef maður er í þokkalegu standi
og sinnir sinni vinnu þá ber það oft
árangur. Það var engin breyting
þar á í þessum leik.“
Bale hefur slegið í gegn með
Tottenham á leiktíðinni og fór til
að mynda illa með Brasilíumann-
inn Maicon þegar liðið vann 3-1
sigur á Evrópumeisturum Inter
í síðustu viku. En hann náði sér
aldrei á strik um helgina og það
var ekki fyrr en undir lok leiksins
að Tottenham sýndi mótspyrnu í
leiknum. Þá var staðan orðin 3-0
fyrir Bolton.
„Þetta var fínn leikur hjá okkur.
Það var mikið búið að tala um
þennan leik og við vorum mjög
sáttir. Við spiluðum vel og leyfð-
um þeim ekki að spila sinn venju-
lega leik. Við lokuðum á öll svæði
og nýttum svo þau færi sem við
fengum,“ segir Grétar Rafn.
Hann skoraði sitt fyrsta mark á
leiktíðinni en alls hefur hann skor-
að fimm mörk í tæplega 100 leikj-
um með Bolton. „Ég hef reyndar
verið ósáttur í gegnum tíðina með
hversu lítið ég hef skorað. En það
var gott að skora í þessum leik –
það styttir biðina í næsta mark.“
Bolton er í sjötta sæti deildarinn-
ar sem stendur og gott gengi liðs-
ins hefur komið mörgum á óvart.
„Við erum með sterkara lið en á
síðustu leiktíð og byrjunin á tíma-
bilinu hefur ekki komið okkur á
óvart,“ segir Grétar Rafn og bætir
við að það hafi breytt miklu að fá
Owen Coyle sem knattspyrnustjóra
en hann tók við af Gary Megson
sem var rekinn á síðustu leiktíð.
„Það er himinn og haf á milli
þessara tveggja manna. Ég var
orðinn frekar þunglyndur á að
spila þennan bolta sem við vorum
að gera hjá Megson. Það hentar
mér mun betur að vera í liði sem
leggur áherslu á að spila boltanum
frekar en að negla honum fram.“
Grétar fékk strax að vita um
leið og Coyle kom að hann væri
hans fyrsti kostur í stöðu hægri
bakvarðar.
„Hann er bara með sína föstu
varnarlínu og ég er mjög ánægð-
ur með að vera hluti af henni. Það
hefur aldrei orðið nein breyting
þar á. Hann er frábær stjóri og
hefur sýnt mér mikið traust. Þá
launar maður honum það til baka,“
segir Grétar.
Hann skipti einnig um númer
fyrir leiktíðina – úr fimmtán í tvö.
„Stjórinn sagði mér bara að vera
númer tvö. Hann vill vera með sinn
hægri bakvörð í þessari treyju.
Það voru engar rökræður um það
– ég bara hlýddi. Enda skiptir það
mig engu máli hvaða númer ég er
með á treyjunni. Aðalmálið er að
fá að spila.“
Grétar segir að lífið í Bolton
sé gott. „Hér er frábært að vera.
Félagið er frábært, ég er ánægður
með stjórann og liðið er mjög gott.
Ég er í toppstandi og líður vel. Ef
það er tilfellið þá spilar maður líka
vel, eins og raunin er nú.“
eirikur@frettabladid.is
Bale átti ekkert í Grétar
Grétar Rafn Steinsson skoraði laglegt mark í 4-2 sigri Bolton á Tottenham.
Hann fékk það hlutverk að gæta Gareths Bale og var í raun með hann í vasan-
um. Góður svefn og góð næring var lykillinn að frammistöðu Grétars Rafns.
ÍSMAÐURINN FAGNAR Grétar Rafn fagnar marki sínu gegn Tottenham á milli þeirra Younes Kaboul og Luka Modric.
NORDIC PHOOTOS/GETTY
Ég var orðinn frekar
þunglyndur á að spila
þennan bolta sem við vorum
að gera hjá Gary Megson.
GRÉTAR RAFN STEINSSON
LEIKMAÐUR BOLTON WANDERERS
KÖRFUBOLTI Tindastóll vann sinn fyrsta sigur
á keppnistímabilinu þegar félagið hafði betur
gegn 1. deildarliði Breiðabliks í Smáranum í
gær í 32-liða úrslitum Powerade-bikarins en
fjölmargir leikir fóru fram um helgina í bik-
arnum. Lokaúrslit urðu 49-78 fyrir gestina frá
Króknum og mátti sjá mikinn styrkleikamun á
liðunum. Tindastóll leiddi með 17 stigum í hálf-
leik og náðu heimamenn aldrei að gera atlögu
að gestunum.
Stigaskor leikmanna var nokkuð lágt og var
Friðrik Hreinsson hjá Tindastóli atkvæðamest-
ur með 16 stig. Sean Kingsley Cunningham og
Helgi Rafn Viggósson skoruðu 11 stig en Helgi
tók einnig 13 fráköst. Hjá Breiðablik var Steinar
Arason atkvæðamestur með 12 stig.
Þetta er fyrsti sigur Tindastóls á leiktíðinni
en félagið hafði tapað öllum leikjum sínum í Ice-
land Express-deildinni. Það var því vel fagnað
í leikslok og vonar þjálfari liðsins, Borce Iliev-
ski, að sigurinn gefi liðinu aukið sjálfstraust.
„Eftir þetta langa sigurleysi þá erum við
kátir með sigurinn og það er gott fyrir liðið að
finna sigurtilfinningu. Ég vona að þetta gefi
okkur aukið sjálfstraust og að við förum að
leika betur,“ segir Ilievski en liðið mun fá til
sín nýjan leikmann á næstu dögum.
Breiðablik féll úr Iceland Express-deildinni
í vor og teflir fram ungum og efnilegum leik-
mönnum í vetur. Að sögn Sævalds Bjarnasonar,
þjálfara Breiðabliks, mun taka tíma að búa til
sterkt körfuboltalið í Kópavoginum.
„Liðið hefur tekið miklum breytingum frá
síðustu leiktíð og nú erum við að byggja upp
nýtt lið. Við töpum fullstórt í þessum leik og
það vantaði meiri ákefð í okkar leik. Það mun
taka tíma að búa til gott lið.“
Nokkrar athyglisverðar rimmur voru á dag-
skrá bikarkeppninnar að þessu sinni. Íslands-
og bikarmeistarar Snæfells unnu stórsigur á
grönnum sínum í Víkingi frá Ólafsvík, 129-45,
en 2. deildarlið Patreks gerði sér lítið fyrir og
skoraði 76 stig gegn stórveldinu úr Keflavík
sem vann þó leikinn næsta örugglega, 99-76.
„Við vorum sáttir eftir leikinn,“ sagði Bene-
dikt Bergmann Arason sem er í forsvari fyrir
liðið. Patrekur er fyrst og fremst skipað Patr-
eksfirðingum eins og nafn liðsins gefur til
kynna.
„Ég gat ekki betur séð en að Keflavík væri
með sitt sterkasta lið. Við bjuggumst auðvitað
við slátrun en vorum ákveðnir í að stríða þeim
sem gekk svona vel. Þetta er frábært fyrir
félagið og við ætlum okkur að fara enn lengra í
bikarnum á næsta ári,“ sagði Benedikt. - jjk, esá
32-liða úrslitum Powerade-bikarkeppni karla lauk um helgina þegar fjölmargir leikir fóru fram:
Gott fyrir liðið að finna sigurtilfinningu
GÓÐUR Friðrik Hreinsson var stigahæstur hjá Tindastóli
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FORMÚLA 1 Sigur Sebastians Vettel
í brasilíska kappakstrinum í For-
múlu 1 um helgina heldur spennu
í stigakeppni ökuþóra fyrir loka-
mót tímabilsins í Abu Dhabi um
næstu helgi.
Red Bull tryggði sér þó heims-
meistaratitilinn í flokki bíla-
smiða þar sem ökumenn liðs-
ins, þeir Vettel og Mark Webber,
urðu í tveimur efstu sætunum um
helgina.
Spánverjinn Fernando Alonso
varð í þriðja sæti og er efstur í
stigakeppni ökuþóra fyrir loka-
helgina. Lewis Hamilton varð
fjórði en á litla sem enga mögu-
leika á titlinum. Félagi hans hjá
McLaren, Jenson Button, er úr
leik í baráttunni.
Alonso dugir annað sætið um
næstu helgi til að tryggja sér
titillinn. Þeir Vettel og Webber
koma næstir í stigakeppninni og
eru þeir einu sem eiga raunhæfan
möguleika á að skáka Alonso. - esá
Formúla 1 í Brasilíu:
Spenna í titil-
baráttunni
VETTEL Fagnaði sigrinum vel og innilega
í Brasilíu. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Ekkert breyttist á toppi
spænsku úrvalsdeildarinnar í
gær þar sem bæði Real Madrid
og Barcelona unnu leiki sína.
Real hafði betur gegn grönnum
sínum í Atletico í Madrídarslag.
Þeir Ricardo Carvalho og Mesut
Özil skoruðu bæði mörk Real á
fyrstu 20 mínútunum í 2-0 sigri.
Þeir Lionel Messi, David Villa
og Pedro voru allir á skotskónum
í 3-1 útisigri Barcelona á Getafe.
Manu del Moral skoraði mark
Getafe úr vítaspyrnu.
Real hélt því toppsæti deildar-
innar og er með 26 stig eftir tíu
leiki, einu meira en Barcelona.
Villarreal er svo í þriðja sæti
með 23 stig. - esá
Spænska úrvalsdeildin:
Real vann
grannaslaginn
BARÁTTA Simao Sabrosa, leikmaður
Atletico, og Sergio Ramos berjast um
boltann í gær. NORDIC PHOTOS/AGP