Fréttablaðið - 09.11.2010, Blaðsíða 34
9. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR18
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Sigrún Eldjárn gefur út tvær bækur
í ár, Forngripasafnið, sem hún bæði
skrifar og teiknar, og Árstíðirnar sem
hún gefur út ásamt Þórarni bróður
sínum. Þetta er tímamótaár hjá Sig-
rúnu, það eru 30 ár síðan fyrsta bók
hennar, Allt í plati, kom út hjá Iðunni.
„Mér finnst þetta svolítið skrítið,“
segir Sigrún spurð um hvaða tilfinn-
ingar fylgi þessum áfanga. „Skil ekki
að þetta skuli vera orðin þrjátíu ár. En
þetta er víst alveg rétt. Ég var tuttugu
og sex ára þegar fyrsta bókin kom og
síðan eru þær orðnar ansi margar.
Reyndar hefur okkur gengið svolítið
illa að telja þær. “
Önnur nýja bókin er samvinna
þeirra systkinanna Sigrúnar og Þórar-
ins. „Það er bók um árstíðirnar, ljóða-
bók eftir Þórarin sem ég málaði olíu-
málverk við. Þau hanga reyndar uppi
í Þjóðminjasafninu og myndirnar úr
Forngripasafninu líka,“ segir Sigrún.
Sú sýning mun standa út nóvember.
En hvað getur hún sagt okkur um
Forngripasafnið? „Forngripasafnið er
fyrsta bókin í þríleik og hugmyndina
má rekja til þess að ég ólst upp í Þjóð-
minjasafninu til fjórtán ára aldurs,
án þess þó að sagan byggi á mínum
minningum,“ segir Sigrún og hlær.
„Sagan er um strák sem flyst í lítinn
bæ úti á landi með pabba sínum sem
er að taka við forstöðumannsstöðu
á mjög sérstöku safni, þar sem ægir
saman fornmunum, náttúrugripum og
listaverkum.“
Allar bækur Sigrúnar eru skrifaðar
fyrir börn. Hefur aldrei freistað henn-
ar að skrifa fyrir fullorðna? „Nei, í
rauninni ekki. Mér finnst mjög gaman
að gera barnabækur og finnst það
mikilvægt starf. Það er mikilvægt að
krakkar lesi og ég vil bara vanda mig
við það að færa þeim eitthvað skemmti-
legt að lesa,“ segir Sigrún, sem sannar-
lega hefur skemmt ófáum börnum síð-
ustu þrjátíu árin og mun án efa halda
því áfram. fridrikab@frettabladid.is
SIGRÚN ELDJÁRN Á 30 ÁRA ÚTGÁFUAFMÆLI Í ÁR: TVÆR BÆKUR Á AFMÆLISÁRI
Finnst þetta svolítið skrítið
Sigrún hefur gert yfir fjörutíu bækur á þrjátíu ára ferli. Allt í plati var fyrsta bókin og Forngripa-
safnið er sú nýjasta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Haraldar Þorsteinssonar
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 4b Hrafnistu í
Hafnarfirði fyrir frábæra umönnun.
Sigurður Haraldsson Jóna Guðjónsdóttir
Þorsteinn Haraldsson Lára V. Júlíusdóttir
Ingibjörg Haraldsdóttir Sturla Þorsteinsson
Ástráður Haraldsson Eyrún Finnbogadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku hjartans unnusti minn, sonur
okkar, bróðir, mágur, barnabarn,
barnabarnabarn, frændi og
tengdasonur,
Kjartan Björnsson
lést af slysförum 30. október. Útförin fer fram frá
Grindavíkurkirkju fimmtudaginn 11. nóvember kl. 11.
Katrín Erla Erlingsdóttir
Elín Björg Birgisdóttir Björn Kjartansson
Svanbjörg Helga Björnsdóttir Hjörvar Ingi Haraldsson
Júlía Guðrún Björnsdóttir
Sverrir Karl Björnsson
Alexander Birgir Björnsson
Svanbjörg Clausen Sverrir Karlsson
Birgir Júlíusson Agnes Svavarsdóttir
Kjartan Björnsson Guðlaug Guðmundsdóttir
langamma, frændsystkini, tengdaforeldrar og aðrir
aðstandendur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Henning Finnbogason
Ljósheimum 18, Reykjavík,
sem lést þriðjudaginn 30. október, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10. nóvember
kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast Hennings er bent á Félag
áhugafólks og aðstandenda alzheimersjúklinga, FAAS.
Birgir Henningsson Gyða Ólafsdóttir
Ómar Henningsson Elísabet Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir,
Finnbjörn Guðmundsson
stýrimaður, frá Sæbóli í Aðalvík,
sem lést 24. október sl., verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
10. nóvember kl. 13.00.
Jón Finnbjörnsson Erla S. Árnadóttir
Guðrún Hrönn Jónsdóttir Birna Jónsdóttir
Sigríður Guðmundsdóttir Inga Guðmundsdóttir
Hjartkær eiginmaður, faðir, afi og
langafi,
Jón Geir Árnason
hárskurðarmeistari,
Skarphéðinsgötu 6, Reykjavík,
lést á Landakotsspítala laugardaginn 6. nóvember 2010.
Sigríður Einarsdóttir, Díana Vera Jónsdóttir
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar bróður okkar,
Þórhallar Daníelssonar.
Við viljum þakka starfsfólki Heilbrigðisstofnunar
Fjallabyggðar sérstaklega fyrir umhyggju og
hlýju meðan hann dvaldi þar. Einnig viljum við
þakka Kiwanisklúbbnum Skildi, Siglufirði, Elíasi
Þorvaldssyni og Karlakór Siglufjarðar.
Sigurður Gunnar Daníelsson
Soffía Svava Daníelsdóttir Birgir Guðjónsson
Ingibjörg Daníelsdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Edda Snorradóttir
frá Þórshöfn,
Núpalind 4, Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi 28. október, verð-
ur jarðsungin frá Digraneskirkju miðvikudaginn 10.
nóvember kl. 13.00.
Þorkell Guðfinnsson
Snorri Hafsteinn Þorkelsson Björg Skúladóttir
Guðfinnur Helgi Þorkelsson Jóhanna Þorkelsdóttir
Edda Björg Snorradóttir
Elín Salka Snorradóttir
Guðrún Helga Guðfinnsdóttir
Þorkell Máni Guðfinnsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
Þórarinn Haukur
Hallvarðsson
varð bráðkvaddur sunnudaginn 31. október.
Útförin fer fram miðvikudaginn 10. nóvember kl. 15.00
frá Grafarvogskirkju. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast Hauks er bent á
Slysavarnafélagið Landsbjörgu.
Erla Long
Sigurður Long Erla Björk Ingibergsdóttir
Sigrún Þórarinsdóttir
Kristín Unnur Þórarinsdóttir Þórður Benediktsson
barnabörn, barnabarnabörn og systur hins látna.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
Kristborg Benediktsdóttir
Miðleiti 5, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn
17. október. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 12. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar
afbeðnir en þeir sem vilja minnast hennar láti
líknarfélög njóta þess.
Kristján Oddsson
Elínborg Þórarinsdóttir
Benedikt Kristjánsson Rósa Kristjánsdóttir
Sigríður Kristjánsdóttir
Már Kristjánsson Halla Ásgeirsdóttir
Oddur Kristjánsson Hafdís Sigurðardóttir
ömmubörn og langömmubörn
BRAGI SIGURJÓNSSON rithöfundur og ráðherra (1910-1995) fæddist þennan dag.
„Öll fyndni hefur sín takmörk.“