Fréttablaðið - 20.11.2010, Side 10

Fréttablaðið - 20.11.2010, Side 10
 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR EVRÓPUMÁL Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í vik- unni hugmyndir um breytingar á sameiginlegu landbúnaðarstefn- unni, sem stefnt er að á næstu árum. Meginbreytingarnar, sem stefnt er að, verða fólgnar í því að smærri bændum verði tryggt meira fé en nú er, þeir sem stunda búskap á erfið- um landbúnaðarsvæðum fái meiri stuðning og sömuleiðis verði betur stutt við bakið á matvælaframleiðslu frekar en öðrum landbúnaði. Framkvæmdastjórnin leggur til þrjár mismunandi leiðir sem ganga mislangt, allt frá því að farið verði rólega í allar breytingar á núverandi kerfi yfir í allsherjar uppstokkun sem fæli í sér afnám beingreiðslna til bænda. Ekki er þó stefnt að nein- um breytingum á því fjármagni sem Evrópusambandið ver í landbúnað- arkerfið. Tillögurnar eru byggðar á niður- stöðum ráðstefnu, sem haldin var fyrr á árinu. Þessar tillögur verða nú bornar undir hagsmunaaðila og síðan verður lögð fram endanleg tillaga að lagabreytingum í júní á næsta ári. Öll aðildarríkin þurfa að sam- þykkja breytingarnar áður en þær taka gildi, og þær verða einnig að fá samþykki Evrópuþingsins. Dacian Ciolos, hinn rúmenski landbúnaðarstjóri Evrópusam- bandsins, segir megináhersluna vera á að landbúnaðarstefnan verði „grænni, sanngjarnari, hagkvæm- ari og árangursríkari“. Á ráðstefnunni fyrr á árinu var talað um þrjú meginmarkmið, sem stefnt skuli að: Landbúnaðarstefna Evrópusambandsins eigi að tryggja örugga og næga framleiðslu á mat- vælum; hún eigi að gefa bændum hvata til að taka tillit til umhverfis- og loftslagssjónarmiða; og loks eigi hún að taka mið af því að bændur gegni meginhlutverki í að halda strjálbýlum svæðum í byggð. Evrópusambandið varði 55 millj- örðum evra í landbúnaðarmál á síðasta ári, en á núverandi gengi nemur sú fjárhæð um það bil 8.500 milljörðum króna. Breytingartillögurnar hafa fengið misjafnar viðtökur. Írskir bændur hafa til dæmis gagnrýnt róttækari hugmyndirnar um að stokka upp í beingreiðslum, þannig að þeim verði dreift til bænda óháð fyrri reynslu. Þeir óttast að það geti grafið undan landbúnaðarfram- leiðslu af öllu tagi. Sameiginlega landbúnaðarstefnan hefur sætt margvíslegri gagnrýni, meðal annars fyrir að vera of dýr og óhagkvæm. gudsteinn@frettabladid.is Stokka upp í landbúnaði Breytingar á sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB miða að því að styrkja smærri bændur á erfiðum svæðum. Endanlegar tillögur kynntar á næsta ári. DACIAN CIOLOS Landbúnaðarstjóri Evrópusambandsins kynnti þrjár meginleiðir á blaðamannafundi í Brussel í vikunni. NORDICPHOTOS/AFP Fjöldi býla í ESB eftir löndum (að undanskildum allra smæstu býlunum) Ítalía 1.383.000 Pólland 1.128.000 Spánn 940.000 Rúmenía 867.000 Grikkland 711.000 Frakkland 491.000 Þýskaland 349.000 Portúgal 182.000 Bretland 179.000 Önnur lönd 1.082.000 Samtals 7.311.000 Fækkun býla í ESB Ár Fjöldi býla Vinnuafl 2003 7.932.000 18.211.000 2005 7.823.000 17.970.000 2007 7.311.000 16.379.000 LANDSKJÖRSTJÓRN Auglýsing frá landskjörstjórn um talningu atkvæða í kosningum til stjórn- lagaþings 27. nóvember 2010 og móttöku utankjörfundaratkvæða Landskjörstjórn kemur saman að loknum kjörfundi kl. 22 laugardaginn 27. nóvember nk. til þess að opna atkvæðakassa og undirbúa talningu atkvæða í kosningum til stjórnlagaþings, sem fram fara sama dag. Atkvæðin verða talin í Laugardalshöll, Engjavegi 8 í Reykjavík, og hefst talningin kl. 9 sunnudaginn 28. nóvember nk. Úrslit kosninganna verða kunngerð strax að talningu lokinni. Kjósendur sem greiða atkvæði utan kjörfundar skulu koma atkvæðum sínum til skila fyrir kl. 22 á kjördag. Koma skal atkvæði til kjörstjórnar í því sveitarfélagi þar sem kjós- andi er á kjörskrá eða til landskjörstjórnar: Landskjörstjórn, Alþingishúsinu við Austurvöll, 150 Reykjavík. Enn fremur er kjósendum heimilt að koma utankjörfundaratkvæðum til yfirkjörstjórna og kjörstjórna í öðrum sveitarfélögum fyrir nefnt tímamark. Brýnt er að kjósendur búi sig undir kosningarathöfnina eins og kostur er, hafi með sér útfylltan hjálparseðil og riti skýrt auð- kennistölur þeirra frambjóðenda sem þeir raða á kjörseðilinn. 18. nóvember 2010, Landskjörstjórn. ı Þjónustuver 411 1111 ı www.reykjavik.is/fer parhúsið að Hringbraut 116 118, 107 Reykjavík, til brottflutnings. Húsinu skal komið fyrir á lóðinni nr. 3 – 3A við Meistaravelli í samræmi við deiliskipulag og skulu kauptilboð miðast við það. Húsið er úr timbri, talið byggt 1934, tvær hæðir auk kjallara, samtals að gólffleti 297 ferm. Kjallarinn er steyptur og með steyptri loftaplötu. Nýr eigandi hússins skal sækja um byggingarleyfi fyrir því á lóðinni við Meistaravelli og greiða tilskilin gjöld, þ. á m. gatnagerðargjald. Lóðin er leigulóð og verður hún ásamt húsinu sjálfu afhent kaupanda 1. maí 2011. Flutningur hússins er á ábyrgð kaupanda og skal honum og frágangi hússtæðisins lokið fyrir 1. ágúst 2011. Endurgerð hússins og frágangur á nýrri lóð skal vera í samræmi við gildandi deiliskipulag. Nánari upplýsingar s.s. deiliskipulag lóða við Meistaravelli er að finna á heimasíðu Framkvæmda- og eignasviðs, www.reykjavik.is/fer. Húseignin er til sýnis í samráði við starfsmenn sviðsins, sími 411 1111. Kauptilboðum skal skila í þjónustuver Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14 fyrir kl. 15:00 mánudaginn 20. desember 2010 og verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Hver bjóðandi getur aðeins skilað einu tilboði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Framkv – á nýja lóð við Meistaravelli Til sölu æmda og eignasvið Reykjavíkurborgar óskar eftir kauptilboðum í Parhús l flutnings FJÖLMIÐLAR Dagblöð á Íslandi hafa ekki verið færri síðan á öðrum áratug síðustu aldar. Þeim hefur fækkað úr fimm í tvö frá árinu 1995. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Þar kemur fram að vikublöðum hefur líka fækkað nokkuð á síðustu árum, eða úr 25 þegar best hefur látið í 21 í fyrra. Hagstofan segir að tvö vikublað- anna sem komu út á síðasta ári hafi verið landsblöð, en svonefnd landshluta- og staðarblöð hafi verið 19 talsins. Af þeim vikublöð- um sem út voru gefin á síðasta ári voru ellefu seld blöð en tíu fríblöð. - jhh Blöðum fækkar á Íslandi: Dagblöð ekki færri í 90 ár VÍSINDI Stjarnvísindamenn telja sig hafa fundið yngsta svarthol sem vitað er um í námunda við vetrar- brautina okkar. Til þess notuðu þeir Chandra-röntgengeimsjón- auka NASA. Svartholið varð til þegar stjarna sprakk árið 1979 og er því 31 árs gamalt. Árið 1979 sáu stjörnuáhugamenn stjörnu springa í þyrilþokunni M100 sem er í 50 milljón ljósára fjarlægð í stjörnumerkinu Beren- íkuhaddi. Sprengistjarnan hlaut nafnið SN 1979C og er svart holið leifar hennar. Uppsprettan var stöðug í þau tólf ár sem mælingar stóðu yfir, frá 1995 til 2007. Það bendir til þess að þar sé nú svart- hol sem sé að gleypa nærliggjandi efni, annað hvort leifar stjörnunn- ar sem sprakk eða fylgistjörnu. Uppgötvunin veitir stjörnufræð- ingum einstakt tækifæri til rann- sókna. „Sé túlkun okkar rétt er hér um að ræða nærtækasta dæmið um myndun svarthols sem við höfum orðið vitni að,“ segir Daniel Patnaude við Harvard-Smithsoni- an Center for Astrophysics í Cam- bridge í Massachusetts, en hann hafði umsjón með rannsókninni. Talið er að sprengistjarnan hafi orðið til þegar stjarna, tuttugu sinnum massameiri en sólin, féll saman. - shá Stjarnvísindamenn sáu stjörnu springa í 50 milljón ljósára fjarlægð: Fundu 31 árs gamalt svarthol GÍMALD Sprengistjarnan SN 1979C í þyrilvetrarbrautinni M100. MYND/NASA/CXC/JPL/ESO
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.