Fréttablaðið - 20.11.2010, Page 57

Fréttablaðið - 20.11.2010, Page 57
LAUGARDAGUR 20. nóvember 2010 3 S íðan var ég að hugsa um að reyna að draga fjöl- skylduna með mér á fitness-mót í Mosfellsbæ.“ Blaðamaður grípur það á lofti og spyr hvort hann sé sjálfur far- inn að hnykla vöðvana. „Nei, ekki meira en í ræktinni til að halda mér í formi. Ég hef hins vegar áhuga á öllu sem tengist líkams- rækt og íþróttum.“ Seinni partinn liggur leið Bjarka í Hafnarfjörð þar sem honum hefur verið falið að lýsa leik FH og Akureyrar. „Ég hefði nú farið hvort sem er enda sonur minn farinn að spila með FH og hef ég fylgst meira með FH-ingum upp á síðkastið en ég hef gert í gegnum tíðina. Um kvöldið er svo komið að hinni árlegu tarfagleði sem að þessu sinni verður haldin heima hjá Bjarka. „Eins og nafnið gefur til kynna er bara um að ræða karlmenn en þetta eru svilar, feður, bræður og frændur sem eru tengdir inn í fjölskyldu Elísu Bjarki býður karlmönnum í fjölskyldu konu sinnar heim í kvöld í svokallaða tarfagleði. konunnar minnar. Við hittumst einu sinni á ári í kringum jóla- hátíðina, borðum góðan mat og njótum þess að vera kvenmanns- lausir,“ segir Bjarki og hlær. Hann segir það með ráðum gert að vera ekki búinn að mála stof- una enda séu tarfarnir til alls líklegir. Sunnudagurinn verður öllu rólegri hjá Bjarka. Hann á von á því að pensillinn fari á loft en síðan verður lagt í góðan sunnu- dagsmat samkvæmt venju á hans heimili. „Ætli kvöldinu verði ekki varið fyrir framan sjónvarpið,“ segir Bjarki. Ný vinnuvika tekur svo við en Bjarki tók við meistara- flokki ÍR fyrr á þessu ári. „Þetta eru ungir og ferskir strákar og vonast ég til að geta kennt þeim eitthvað.“ Sjálfur hefur Bjarki að mestu lagt skóna á hilluna en spilar þó með Jumboys í utan- deildinni. Hann varð fjörutíu og þriggja ára í vikunni en gerir lítið úr því. „Þegar aldurinn er farinn að færast yfir reyn- ir maður að gera sem minnst úr afmælum.“ vera@frettabladid.is Ráðstefnan er opin öllum og er aðgangseyrir greiddur við inngang- inn. Átta fyrirlesarar deila fræðandi og hagnýtum upplýsingum um heilsu, hugarfar, íþróttir og annað er viðkem- ur lýðheilsu. Dr. Sigurbjörn Árni Arngrímsson heldur fyrirlesturinn Er baráttan við BMI töpuð. Hugarfar og árang- ur í íþróttum er heiti á fyrirlestri Hauks Inga Guðnasonar, sálfræð- ings og knattspyrnumanns. Kolbrún Þorsteinsdóttir lýðheilsufræðingur ræðir um Afl eldhúsborðsins, en Sig- rún Daníelsdóttir sálfræðingur ræðir um hvort líkamsímynd unglinga sé brengluð. Matti Ósvald, heildrænn heilsu- fræðingur, heldur fyrirlesturinn Heil- brigð skynsemi – heilsunnar vegna. Viðar Halldórsson íþróttafræðingur spyr hvort hreyfing sé besta forvörn- in. Páll Ólafsson félagsráðgjafi gefur Fimm ráð til for- eldra og að lokum heldur dr. Álfgeir Logi Kristj- ánsson fyrirlesturinn Áhrif nærsamfélagsins á heilsuhegðun barna og unglinga. Boðið er upp á létt- ar veitingar og í hléi syngur Hera Björk Þór- hallsdóttir nokkur lög fyrir gesti ráðstefnunn- ar. Stjórnandi ráðstefnunn- ar er Freyr Eyjólfsson en nánari upplýsingar er að finna á www.ummig.is Er baráttan við BMI töpuð? LÝÐHEILSURÁÐSTEFNA VERÐUR HALDIN Á GRAND HÓTELI Í DAG FRÁ KLUKKAN 11 TIL 14. Kynning Ris à la mande með kirsuberjasorbet. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁNHnetuhjúpaður lax með kryddlegnu grænkáli, granateplum og karamelíseraðri sítrónusósu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Danskur jólamatur á 101 hotel Jólamatseðill 101 hotel verður fáanlegur alla daga fram til jóla. Þar má finna hefðbundna jólarétti með nýstárlegu sniði, til dæmis síld marineraða í anísbrjóstsykri. Eftirmiðdagarnir verða helgaðir heimabökuðu dönsku vínarbrauði og jóladrykkjum. „Við erum nýfarin af stað með jólamatseðil- inn,“ segir Gunnvant Ármannsson, yfirkokk- ur á 101 hotel. „Við höldum okkur við hefð- bundinn danskan jólamat, en nálgumst hann á nýstárlegan hátt og til þess að koma okkur í gang verður danski meistarakokkurinn Max Steiner-Rode, sem hefur unnið á veitingastöð- um í Danmörku og víða um Evrópu, með mér í eldhúsinu um helgina.“ „Efniviðurinn er sá sami og í hefðbundnu dönsku jólahlaðborði,“ segir Max spurð- ur í hverju nýjungin felist. „En við leggjum áherslu á að meðhöndla hann á nýjan hátt, bæði þannig að hann verði heilsusamlegri og til þess að fá fram nýja bragðupplifun. Gamla aðferðin er orðin svo leiðinleg og fyrirsjáan- leg. Við sjóðum til dæmis hvorki grænkálið né rauðkálið heldur marinerum það og berum það fram hrátt. Marineringin gefur því jóla- bragð en það er miklu hollara á þennan hátt. Síldin er svo marineruð í uppleystum dönsk- um brjóstsykri með anísbragði þannig að við höldum okkur við hina hefðbundnu mariner- uðu síld, bara snúum aðeins upp á hefðina. Anísinn passar vel með fiski og sykurinn í brjóstsykrinum kemur í stað hvíts sykurs sem vanalega er notaður í svona marineringar. Við sem sagt höldum okkur við það sem vanalega er notað í danskan jólamat en setjum það í óvænt samhengi og byggjum jólamatinn upp á nýtt.“ Á níu rétta matseðlinum er meðal annars að finna önd, svínasíðu, lax og ferska og marin- eraða síld auk hins ómissandi eftirréttar Ris à la mande í glænýjum búningi. Hægt verður að fá rétti af matseðlinum allan daginn alla daga fram að jólum en auk þess verður boðið upp á tveggja rétta matseðil með svipuðu sniði í hádeginu og á eftirmiðdögum freistar heima- bakað danskt vínarbrauð með heitum drykkj- um. „Fólk getur raðað saman sínum eigin mat- seðli,“ segir Gunnvant „og hugmyndin er að þú getir komið nokkrum sinnum og reynt eitt- hvað nýtt í hvert sinn.“ Max Steiner-Rode og Gunnvant Ármannsson bjóða upp á danskan jólamat í nýstárlegu samhengi á 101 hotel. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sjöhundruð og ellefu listaverk hafa bæst við safneign Listasafns Reykjavíkur á undan- förnum fimm árum og verður hluti þeirra til sýnis í vestursal Kjarvalsstaða frá og með deginum í dag. Auk þess verður til sýnis skrá og myndir af öllum aðföngum safnsins á tímabilinu. Í dag klukkan 15 mun Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, bjóða upp á leiðsögn um hin nýju aðföng og varpa ljósi á mikilvægi þess fyrir listasöfn að hafa skýra stefnu þegar kemur að innkaupum eða söfnun á listaverkum. Heimild: www. listasafnreykja- vikur.is Framhald af forsíðu                     !"! # $  %& ' $  %& (  )   #   *    +      ,   #  -#  ./( 0,#1# FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI HALLDÓR BALDURSSON Meiri Vísir. Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku. m.visir.is Fáðu Vísi í símannog iPad!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.