Fréttablaðið - 20.11.2010, Side 98

Fréttablaðið - 20.11.2010, Side 98
 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR66 Þórunn Ólý Óskarsdóttir hlaut viður- kenningu Barnaheilla – Save the Children sem afhent voru í Þjóðmenn- ingarhúsinu í gær, fyrir sérstakt fram- lag í þágu barna og mannréttinda. Viðurkenningin er afhent til að vekja athygli á Barnasáttmálanum og mikil- vægi þess að íslenskt samfélag standi vörð um mannréttindi barna. Þórunn Ólý er forstöðukona ungl- ingasmiðjanna Traðar og Stígs sem reknar eru af Reykjavíkurborg. Hún útskrifaðist sem félagsráðgjafi frá Háskólanum í Stafangri árið 1977. Hún hóf starfsferil sinn á Meðferðar- heimilinu á Kleifarvegi 15, vann í átta ár við Sálfræðideild skóla en árið 1986 tók hún við starfi forstöðumanns Ungl- ingaathvarfsins í Breiðholti sem síðar varð Unglingasmiðjan Tröð. Síðastliðin tvö ár hefur hún gegnt starfi sem for- stöðumaður beggja unglingasmiðjanna Traðar og Stígs. Talið er að árinu 1987 til dagsins í dag hafi ríflega 600 ungmenni notið góðs af starfsemi smiðjanna. Flest ung- mennanna, sem eru á aldrinum 13 til 18 ára, leita þangað vegna félags legrar einangrunar, eineltis, hlédrægni, skerts sjálfstrausts og í sumum tilfellum vegna erfiðra uppeldisskilyrða. Mark- mið smiðjanna er að efla sjálfstraust og jákvæða sjálfsmynd unglinganna með markvissum stuðningi, og bæta þar með líðan. Í fréttatilkynningu frá Barnaheillum – Save the Children segir um Þórnýju: „Að öðrum ólöstuðum, hefur Þórunn Ólý verið drifkrafturinn í starfsemi unglingasmiðjunnar Traðar undan- gengin ár og einnig hefur hún átt mikla aðkomu að starfi unglingasmiðjunnar Stígs í gegnum árin. Hún hefur verið óþreytandi í baráttunni fyrir unga fólk- ið sem þátt hefur tekið í starfinu og þakklæti foreldra og ævarandi tengsl við skjólstæðinga bera starfinu gleggst vitni. Þórunn Ólý hefur einnig í gegn- um tíðina barist ötullega fyrir því að standa vörð um starfsemina þar sem hún veit hversu mikilvægt það er fyrir samfélagið að ungt fólk sem er félags- lega einangrað verði virkir þjóðfélags- þegnar.“ Hlaut viðurkenningu Barnaheilla MEÐ VIÐURKENNINGARSKJALIÐ Þórunn Ólý Óskarsdóttir, forstöðukona unglingasmiðjanna Traðar og Stígs, hlaut viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children sem afhent voru í Þjóð- menningarhúsinu í gær. Kór Langholtskirkju heldur tónleika á morgun, sunnu- daginn 21. nóvember en það er dagur heilagrar Sesselju, verndara tónlistarinnar. Meginverk tónleikanna er eftir bandaríska tónskáldið Eric Whitacre. Verk Þóru Marteinsdóttur Ave maris stella, sem hún samdi fyrir Langholtskirkjukór á síð- asta ári, verður endurflutt og í minningu Marteins H. Friðrikssonar verður flutt lag hans Hljóður lýt ég hátign þinni. Einnig verða flutt verk eftir nokkur höf- uðtónskáld kirkjutónlistar á Norðurlöndum m.a. Knut Nystedt, Egil Howland og Trond Kverno. Stjórnandi kórsins er Jón Stefánsson og á orgel leikur í nokkrum verkum Tómas Guðni Eggertsson. Tónleik- arnir hefjast klukkan 20 annað kvöld í Langholts- kirkju. - gun Tónar til heiðurs heilagri Sesselju GOTT TÓNLISTARHÚS Langholtskirkja mun óma af söng annað kvöld. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og smákökur í Bókabúð Máls og menn- ingar á sunnudaginn auk þess sem hægt verður að skoða svokallað stjörnu- ver. Stjörnuver er sýndar- heimur, kúlulaga hvelfing þar sem hægt er að fræðast um og skoða reikistjörnur, skýjabelti Júpíters, hringa Satúrnusar og jörðina frá fjarlægum sjónarhornum. Tilefnið er útkoma bókar- innar Alheimurinn sem For- lagið gefur út en í bókinni má finna allt frá grundvallar- hugtökum í stjörnufræðinni til vegvísis um himingeim- inn. Kynningin stendur yfir frá klukkan 14-17. - jma Ferðast á milli reikistjarna SÝNDARHEIMUR Í BÓKABÚÐ Í svokölluðu stjörnuveri geta gestir bókabúðar Máls og menningar skoðað ýmsar reikistjörnur sem og jörðina sjálfa. Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, Hrefna Sveinsdóttir frá Vík í Mýrdal, Sóltúni 30, Reykjavík, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju 23. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarsjóð Blindrabókasafns Íslands. Banki: 137-05-69187, kt.: 650183-0459. Elsa Þorsteinsdóttir Axel Bryde Sveinn Hrólfsson Daði Hrólfsson Debora Turang Arnar Þór Hrólfsson Andri Hrólfsson Sunna Karlsdóttir Ingólfur Hrólfsson Hanna Jónsdóttir Gunnhildur Hrólfsdóttir Finnur Eiríksson Bryndís Hrólfsdóttir Engilbert Gíslason barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, Jóhönnu Kristínar Hlöðversdóttur (Dadýjar) Leirutanga 43a, Mosfellsbæ. Guðmundur Ebbi Pétursson Pétur Heimir Guðmundsson Heiðveig Andrésdóttir Magnús Snorri Guðmundsson Sunna Mjöll Sigurðardóttir Guðmundur Atli Pétursson Kristín Þóra Pétursdóttir. Okkar einstaka og ástkæra móðir, tengdamóðir og amma, Soffía Guðmundsdóttir lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 11. nóvember. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 22. nóvember kl. 13.00. Þorvaldur Ásgeirsson Eva Hrönn Jónsdóttir Guðmundur Ægir Ásgeirsson Tanja Ösp Þorvaldsdóttir Ísak Snær Þorvaldsson Óðinn Breki Þorvaldsson Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu samúð og hlýhug við and- lát og útför elskulegar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Kristínar Þórhildar Guðbrandsdóttur Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Karitasar, dagdeildarinnar í Kópavogi og líknardeildarinnar á Landakotsspítala fyrir frábæra umönnun og nærgætni við Kristínu í veikindum hennar. Arnór G. Jósefsson Sigursteinn Jósefsson Ólöf Hilmarsdóttir Reynir Jósefssson Unnur Bergþórsdóttir Ólafur G. Jósefsson Anna María Markúsdóttir Arndís Jósefsdóttir Jón Ragnarsson barnabörn og langömmubörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför Maríu Sigurðardóttur Hvassaleiti 58, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11-E Landspítala við Hringbraut. Konráð Ó. Kristinsson Sigurður Konráðsson Kristín Jóhanna Harðardóttir Halldór Konráðsson Þóra Þórhallsdóttir Konráð Konráðsson Bryndís Hinriksdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangaafi, Víglundur Guðmundsson Greniteigi 53, Keflavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 18. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Þeim sem vilja minnast hans er bent á MND-félagið, sími 565-5727. Guðbjörg K. Víglundsdóttir Guðmundur I. Guðjónsson Magnea Inga Víglundsdóttir Gunnar Magnússon Hafrún Ólöf Víglundsdóttir Sverrir Víglundsson Hallfríður A. Matthíasdóttir Jóhann S. Víglundsson Halla Sjöfn Hallgrímsdóttir Íris Víglundsdóttir Böðvar Bjarnason Lilja Víglundsdóttir Njáll Karlsson Ragnheiður Víglundsdóttir Kristján Valur Guðmundsson afabörn, langafabörn og langalangafabarn.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.