Fréttablaðið - 20.11.2010, Page 103

Fréttablaðið - 20.11.2010, Page 103
LAUGARDAGUR 20. nóvember 2010 71 Sænska prinsessan Madeleine talaði í fyrsta sinn opinberlega um sambands- slitin við Jonas Bergström síðasta vor í blaðaviðtali í vikunni. Þau voru nýt- rúlofuð þegar upp komst um ítrekað framhjáhald kappans, meðal annars með ungri norskri stúlku sem seldi sögu sína til slúðurblaða þar í landi. Madeleine ákvað að opna sig í helgar- útgáfu sænska dagblaðsins Dagens Nyheter en þar kemur fram að hún hafi átt mjög erfitt með þetta allt saman. „Sama dag og sænska krúnan staðfesti sambandsslitin ákvað ég að fljúga til New York. Athyglin og fjölmiðlafárið var of mikið fyrir mig á þessum tíma,“ viðurkennir hún með einlægum hætti en hún tók sér langt frí frá opinberum störfum til að komast aftur í andlegt jafnvægi. Madeleine hefur ákveðið að flytja til New York í eitt ár en þar segist hún geta gengið um göturnar án þess að fólk beri kennsl á hana. „Stokkhólmur getur verið ótrúlega lítil borg stundum og ég er á þannig krossgötum í mínu lífi að ég þarf tilbreytingu.“ Skipst hafa á skin og skúrir í sænsku konungsfjölskyldunni en fyrst sleit Madeleine trúlofun sinni, svo gekk krónprinsessan Viktoría í það heilaga og nú síðast í haust kom út mikil skandalabók um kónginn sjálf- an Karl Gústaf. Fjölmiðlafárið var of mikið fyrir mig Rokksveitin Agent Fresco efndi til hlustunarpartís á Kaffibarnum á dögunum. Þar var nýjasta plata sveitarinnar, A Long Time Listen- ing, spiluð fyrir gesti. Platan er væntanleg í búðir á mánudag en hún hefur verið í vinnslu í rúm tvö ár. Platan inniheldur sautján lög sem mynda eina heild og þar af eru tólf splunkuný. Hin lögin eru tekin af EP-plötunni Lightbulb Universe sem kom út fyrir tveim- ur árum. Meðlimir Agent Fresco eru söngvarinn Arnór Dan Arnar- son, Hrafnkell Guðjónsson trymb- ill, Þórarinn Guðnason gítarleik- ari og bassaleikarinn Vignir Rafn Hilmarsson sem gekk til liðs við sveitina í júlí síðastliðnum. Spiluðu nýju plötuna AGENT FRESCO Hljómsveitin tók á móti gestum í hlustunarpartíinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Kjólar eins og sá sem Kate Midd- leton, unnusta Vilhjálms Breta- prins, var í er trúlofun þeirra var kynnt seldust upp á innan við sólar hring eftir að myndir af henni í kjólnum birtust. Kjóllinn er hannaður af brasilískum hönn- uði sem Middleton leitar gjarn- an til þegar hana vantar kjóla við opinberar athafnir. Samkvæmt talsmanni verslunar innar Harvey Nichols í London er kjóllinn nú ófáanlegur og er langur biðlisti eftir einum slíkum. „Okkur hafa borist marg- ar fyrirspurnir um kjólinn. Hann seldist upp nánast strax,“ sagði verslunarstjóri Harvey Nichols í viðtali við breska Vogue. Kate leggur línurnar TÍSKUTÁKN Kjóll Kate Middleton þótti svo fallegur að hann seldist upp á innan við sólarhring. NORDICPHOTOS/GETTY Sögur ganga nú um að sextán ára gömul dóttir fyrrverandi forseta- frambjóðandans Söruh Palin sé ólétt. Bristol Palin, eldri dóttir Söruh, varð sem frægt er orðið ólétt á táningsaldri og nú gæti verið að yngri dóttirin, Willow, eigi einnig von á barni. Að sögn bandarískra fjölmiðla varð frú Palin mjög reið við frétt- irnar. „Sarah fékk áfall og trúði ekki að hún væri að ganga í gegn- um þetta aftur með yngri dóttur sína. Mæðgurnar fóru saman til að kaupa þungunarpróf og Sarah var á nálum allan tímann inni í versluninni,“ var haft eftir heim- ildarmanni. Orðrómurinn hefur þó ekki verið staðfestur af Palin- fjölskyldunni. Ótímabær þungun TALAR ÚT UM SAMBANDS SLITIN Sænska prins- essan Madeleine hefur tjáð sig í fyrsta sinn um framhjáhald fyrr- verandi unnusta síns, Jonasar Bergström. Slúður- miðlar í Noregi upplýstu um framhjáhaldið og varð það til þess að leiðir parsins skildu í vor. NORDICPHOTOS/GETTY Skemmtilegt barnaefni með íslensku tali Dreifing Myndform · sími: 534 0400 · myndform@myndform.is · myndform.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.