Kylfingur - 15.12.1986, Page 1
SIGURSVEITIR GR
í SVEITAKEPPNI G.S.Í.
F.v. Einar L. Þórisson, Sigurður Pétursson, Ragnar Ólafsson, Hannes Eyvindsson, Björgúlfur Lúðviksson, Ásgerður Sverrisdóttir,
Ragnhildur Sigurðardóttir og Steinunn Sæmundsdóttir.
6. og 7. september sl. fór Sveitakeppni G.S.Í. í I. deild fram í Grafarholti. Golfklúbbur Reykjavíkur sendi
eina kvennasveit og tvær karlasveitir til keppni. Kvennasveitin var þannig skipuð: Ásgerður Sverrisdóttir,
Ragnhildur Sigurðardóttir og Steinunn Sæmundsdóttir, en liðsstjóri var Björgúlfur Lúðvíksson. í A-sveit
karla voru Einar L. Þórisson, Hannes Eyvindsson, Ragnar Ólafsson og Sigurður Pétursson, en liðsstjóri var
sá sami og hjá konunum. B-sveitin var þannig skipuð: Gunnar Sn. Sigurðsson, Óskar Sæmundsson, Sigurður
Hafsteinsson og Sigurjón Arnarsson, en liðsstjóri var Garðar Eyland.
Skemmst er frá að segja, að GR sigraði bæði í karla- og kvennafíokki, og B-sveit karla náði 3. sæti. í I.
deild karla varð A-sveit GR yfirburðasigurvegari á 915 höggum. í 2. sæti varð A-sveit Keilis á 936 höggum,
en B-sveit GR varð í 3. sæti eins og áður sagði, aðeins 6 höggum á eftir Keili. Rétt er að geta þess, að Sigurður
Pétursson setti vallarmet á 72 holum, lék hann á 296 höggum.
Keppnin í I. deild kvenna var miklu tvísýnni. Konurnar léku 36 holur, og að þeim loknum voru Golfklúbbur
Reykjavíkur og Keilir jafnir að höggafjölda, báðar sveitirnar á 343 höggum. Var þá bætt við árangri 3. kepp-
anda hvorrar sveitar, eins og segir í reglugerð. Reyndist þá GR vera á í 526 höggum, en Keilir var á 537, svo
að GR hlotnaðist 1. sætið, en GK hafnaði í 2. sæti. í 3. sæti varð Golfklúbbur Vestmannaeyja á 384 höggum.
Það dapurlega hlutskipti að falla niður í 2. deild féll í skaut GV í karlaflokki, en GA hjá konum.